samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir.
Forseti. Nákvæmlega, eitthvað kostar að innheimta þetta. Þetta er ekki skilvirk leið. Skilvirkasta leiðin væri að vera með eitthvert kerfi sem allir þekktu, eins og hv. þingmaður nefnir. Það er ofboðslega mikil uppbygging á alls konar þjónustu og svoleiðis hér í höfuðborginni og landsmenn allir eiga rétt á að sækja þessa þjónustu, þeir borga fyrir hana o.s.frv. Þetta eru málefnaleg sjónarmið sem hafa komið fram varðandi t.d. Reykjavíkurflugvöll um að fólk eigi að hafa greiðan aðgang að borginni til að geta sótt þessa þjónustu til jafns við aðra.
Það sem landsbyggðin hefur mikið kallað eftir er að passa upp á að samgönguinnviðir þar, bæði til að sækja þjónustu nær en líka til þess að geta sótt hana um lengri veg — það er lengri vegur yfirleitt að fara til að sækja þjónustu — séu í lagi. Og partur af því er einmitt að þá sé það greitt af almannafé, en öll þessi uppbygging hérna í höfuðborginni er greidd af almannafé. En nú á að fara að rukka Suðurkjördæmið sérstaklega fyrir að fá einhverjar framkvæmdir hjá sér. Hvers vegna? Ég get ekki séð að það sé annað en það að fjármálaráðherra segir bara: Nei, þið fáið ekki svona mikla peninga. En það er leið til þess að fá þessar framkvæmdir og það er ef það eru einkaaðilar sem fara í það.
Það er draumur Sjálfstæðisflokksins varðandi samgönguuppbyggingu á Íslandi. Þannig er það í Garðabæ, þannig er það í sveitarfélögunum sem eru í kring, þeir vilja fá þetta í stokk undir hjá sér, eru með flottar tillögur um það en það verður að sjálfsögðu að borga fyrir það. Þetta er það sem þeir vilja og þetta er það sem þeir fá með þessu. En ég ætla þó að vona að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og þeir þingmenn Suðurkjördæmis, m.a. Ari Trausti Guðmundsson, sem er framsögumaður og verkstjóri þessa máls í gegnum þingið, (Forseti hringir.) vilji að landsmenn borgi fyrir það. Og svo náttúrlega ef þessi gjaldheimta er svona (Forseti hringir.) þá verður tekin mynd af öllum bílnúmerum þannig að friðhelgi einkalífsins minnkar. (Forseti hringir.) Það verður njósnað um það hvar þú ert að keyra.