samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Í frumvarpinu eru einmitt tekin út úr tiltekin verkefni, eins og bent hefur verið á, og við í Viðreisn teljum að ekki sé endilega skynsamlegt að gera það. Það kann að vera að einhver þeirra séu kannski ekki alveg hin dæmigerðu verkefni sem falla undir þetta. Ég held að það hafi komið fram í máli fulltrúa Vegagerðarinnar. Þeir telja t.d. að fyrstu þrjú verkefnin í frumvarpinu, þ.e. hringvegur norðaustan Selfoss og brú yfir Ölfusá, hringvegur um Hornafjarðarfljót og Axarvegur séu ekki dæmigerð PPP-verkefni. Að því leyti til reikna ég með að hv. þingmaður sé t.d. að vísa til verkefna af þessu tagi sem eru kannski hefðbundnari. Ég veit það ekki en það kemur í ljós. Þau eru tekin út úr og menn segja: Bíddu, eru þetta ekki verkefni sem á að vinna með hefðbundnum hætti?
En almennt um spurningu hv. þingmanns um hvort það kunni að vera ósanngjarnt að taka verkefni fram fyrir með þessum hætti þá kann það að vera. Ég held að besta svarið við því sé að horfa á öll þessi verkefni út frá væntum ávinningi, ábatanum sem felst í þeim, og menn greini það. Síðan eru menn auðvitað með einhverja framkvæmdaröð á því: Þetta er besta verkefnið sem er hægt að ráðast í, þetta er næstbest o.s.frv. Það er eitthvert mat á aðstæðum eins og hv. þingmaður var að segja. Síðan geta menn sagt: (Forseti hringir.) Þetta er röðin og svo ætlum við að taka verkefni þrjú, átta og tíu og nota það í gegnum (Forseti hringir.) þetta, hugsanlega.