150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

lyfjalög.

390. mál
[17:32]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Við ræðum hérna frumvarp til lyfjalaga og ég er á nokkuð svipuðum stað og ég ætla ekki að þylja upp aftur það sem fyrri ræðumenn hafa sagt. Ég vil þó fara aðeins yfir það góða sem tengist þessu frumvarpi og það eru þá sérstaklega þær umsagnir sem komu fyrst þegar þetta mál fór inn á samráðsgátt stjórnvalda í byrjun árs 2019. Það voru 112 umsagnir sem komu inn vegna frumvarpsins og þar af voru 98 umsagnir frá bændum, dýralæknum, þar með töldu Dýralæknafélagi Íslands, og svo félagasamtökum tengdum landbúnaði.

Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort rétt sé að hafa þetta í sama frumvarpi, þ.e. lyf sem ætluð eru okkur mannfólkinu og svo lyf sem ætluð eru dýrum. Það er svo sem ekki mikill tími til að ræða hér rök fyrir því. En þetta frumvarp hefur tekið þeim breytingum að það er staðinn vörður um dýralækna og þeirra starfsemi og þá sérstaklega ef við horfum til dreifbýlis, þannig að það skiptir mjög miklu máli. Einnig vil ég tiltaka að það var tekið tillit til umsagnar Pharmarcticas sem er staðsett á Grenivík og það má telja það hið besta mál.

Það er mitt sjónarmið að ekki sé rétt að setja öll völd inn á eina stóra stofnun sem er Landspítali. Þess vegna hef ég lagt fram breytingartillögu við 44. gr. og svo 45. gr. sem er bara til samræmingar. 44. gr. fjallar um það sem gagnrýnt hefur verið mikið, sem sagt lyfjanefnd Landspítala, sem ég hef kosið að breyta til þess horfs að fjallað verði um sem lyfjanefnd sjúkrahúsa. Og ég tiltek það líka í minni breytingartillögu að það sé ráðherra sem skipar, og ég heyri það hér í máli framsögumanns að það er sú breyting sem meiri hlutinn hefur valið að taka til sín en vill ekki breyta því, skilji ég það rétt, að taka Landspítalaheiti út úr lyfjanefnd þar sem Landspítali á að taka ákvörðun fyrir allar aðrar heilbrigðisstofnanir og ég er á móti því.

Það kom umsögn frá Sjúkrahúsinu á Akureyri um að betra hefði verið að hafa samráð við aðrar opinberar stofnanir, jafnvel ættu að vera þá lyfjanefndir við heilbrigðisstofnanirnar sjálfar, eða jafnvel mætti hugsa sér að það séu tilgreindir ákveðnir fulltrúar frá þeim sem ættu að sitja í lyfjanefndinni sem á að fjalla um allar stofnanir. Það er svo líka eins með lyfjanefnd sem kallast lyfjanefnd Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og það er einnig það sem ég tiltek. Og til samræmingar set ég fram í breytingartillögu að ákvarðanir lyfjanefndanna, bæði sjúkrahúsa og heilsugæslu, séu endanlegar á stjórnsýslustigi og sæti ekki kæru til ráðherra.

Það er mikil gagnrýni búin að koma fram og hv. formaður velferðarnefndar, Helga Vala Helgadóttir, tiltók hér gagnrýni landlæknis sem er þess eðlis að það er varla hægt að horfa fram hjá henni. Ég vona að við fáum það ekki aftur í bakið en þar eru gríðarstór atriði sem skipta mjög miklu máli. Það er eiginlega miður að okkur gefist ekki tími til að bregðast við því þar sem það er beinlínis nauðsynlegt að huga enn betur að því.

Ég ætla ekki að eyða miklu meiri tíma í þetta. Ég tek þó undir þessar áhyggjur og ítreka þær. Það hefur alls ekki verið tekið nægilegt tillit til umfjöllunar sem við myndum þurfa að fara í gegnum í nefndinni þannig að það væri óskandi ef hægt væri að taka tillit til þess.