kveðja til forseta Íslands.
Hv. alþingismenn. Síðastliðinn laugardag var Guðni Th. Jóhannesson endurkjörinn forseti Íslands fyrir komandi kjörtímabil sem hefst 1. ágúst nk. Forseti Íslands er samkvæmt stjórnarskrá annar handhafi löggjafarvaldsins og eru samskipti Alþingis og forseta Íslands því veruleg og þýðingarmikil.
Ég vil fyrir hönd Alþingis óska Guðna Th. Jóhannessyni til hamingju með endurkjörið og þann afgerandi stuðning sem hann hlaut. Ég sendi honum og fjölskyldu hans heillaóskir um leið og við væntum áframhaldandi góðs samstarfs Alþingis og forseta Íslands.
Ég bið þingheim að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum.
[Þingmenn risu úr sætum.]