samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir.
Virðulegur forseti. Við erum auðvitað að brjóta í blað í samgöngumálum þar sem við erum að sameinast um að fara leið sem hefur verið mjög umdeild á síðustu árum, og hefur mikið verið til umræðu, þ.e. að hefja flýtiframkvæmdir á grundvelli viðbótargjaldtöku. Það mun skila þeim árangri til einhvers tíma litið að við munum sjá miklu stórvirkari framkvæmdir í samgöngumálum í landinu, sem kallað hefur verið eftir og eru nauðsynlegar í þessu stóra landi hjá þessari fámennu þjóð þar sem þessir hlutir verða alltaf miklu dýrari en hjá þjóðum sem við berum okkur saman við.
Tvískinnungurinn í málflutningi Pírata er alveg hrópandi. Við erum í sjálfu sér að innleiða nákvæmlega það sama með höfuðborgarsáttmálanum um uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu (JÞÓ: Rangt.)þar sem Píratar hafa samþykkt, í meiri hluta í borgarstjórn, að taka þátt í því verkefni að hefja gjaldtöku innan höfuðborgarsvæðisins. (JÞÓ: Rangt.)Til hvers? Til að flýta framkvæmdum. Þessi tvískinnungur er hrópandi. (Forseti hringir.) Við erum að stíga hér skref og brjóta í blað í uppbyggingu í samgöngumálum landsins.