samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir.
Virðulegur forseti. Í höfuðborgarsamninginn var sérstaklega bætt við ákvæðum um að ekki þyrftu nauðsynlega að vera flýti- og umferðargjöld, hægt væri að fjármagna verkefnið eftir öðrum leiðum. Það var t.d. af því að við mótmæltum. (JÞÓ: Rétt.) Við skulum hafa það algerlega á hreinu, þetta frumvarp snýst um að flýta ákveðnum aðgerðum innan samgönguáætlunar. Það þýðir að um er að ræða skattahækkun, það er ekki flóknara en það. Verið er að fjármagna samgönguáætlun með notendagjöldum. Það er skattahækkun af því að samgönguáætlun er hluti af okkar sameiginlega samfélagssáttmála um samgönguframkvæmdir á öllu landinu. Það að taka einstakar framkvæmdir þar og fjármagna með notendagjöldum er því skattahækkun.