150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

lyfjalög.

390. mál
[10:51]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Þessi breytingartillaga kemur frá fulltrúa minni hluta í nefndinni en ég get ekki stutt hana frekar en aðrar góðar vegna þess að heildin er ófullbúin. Það er ekki hægt að mála yfir leka. 108 greina lagabálkur, heildarlög um lyf, batnar ekki við litlar breytingar eins og þessar, því miður, þannig að við verðum líka á gulu í breytingartillögum sem koma af því að þetta er bara ekki tilbúið. Þetta er ekki nógu vel gert.