150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

665. mál
[11:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er enn einu sinni verið að framlengja einhvern frest. Ég skora á hæstv. félags- og barnamálaráðherra að ljúka þeirri vinnu sem nauðsynleg er en ekki koma hér að ári liðnu og biðja um enn einn frestinn. Við munum engu að síður greiða atkvæði með þessu enda er þetta nauðsynlegt. En við verðum að klára þessa vinnu.