aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Forseti. Hér er lagt til að framlengja bráðabirgðaákvæði í lögunum þar sem samkvæmt samkomulagi aðila vinnumarkaðarins er leyfilegt að víkja frá hvíldarákvæðum, þ.e. til bráðabirgða er verið að fara á svig við lög um réttindi starfsmanna til að veita mikilvæga og nauðsynlega NPA-þjónustu. Málið er að við afgreiddum slíka framlengingu á þessum bráðabirgðalögum í lok árs 2018, ef mig minnir rétt, og þá kom fram frá nefndinni að það væri gríðarlega mikilvægt að þetta yrði skoðað og sett í lög, við gætum ekki verið að afgreiða svona bráðabirgðalög aftur. Setja átti saman einhvers konar nefnd til að vinna að þessu til að finna varanlega lausn. Það var ekki gert fyrr en allt of seint og nú erum við aftur komin á tíma þar sem við þurfum að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði og mér finnst ekki gott að gera þetta svona og þess vegna sit ég hjá. Ég vona innilega að þetta verði lagað (Forseti hringir.) sem allra fyrst svo við séum ekki að fara að framlengja aftur eftir einhvern tíma.