150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

665. mál
[11:10]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hér hafa talað, það er óheppilegt hvað hefur dregist að klára þá frumvarpsgerð sem undir liggur. Ég vil þó benda hv. þingmönnum á að nefndin hefur fengið um það upplýsingar að frumvarpsgerð sé í bígerð og að slíkt frumvarp muni berast nefndinni strax á haustþingi. Ég vil jafnframt minna hv. þingmenn á, ef þess þarf, að af ástæðum sem við hér inni ráðum ekki við hafa ráðuneyti velferðar- og heilbrigðismála verið upptekin við ýmislegt annað þetta vormisseri.