150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir .

944. mál
[11:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Ég vil staldra aðeins við umsögn frá Neytendasamtökunum þar sem þau koma því á framfæri að ekki sé ljóst hvort þeir sem hafa þegar þegið inneignarnótu frá ferðaskrifstofum eigi rétt á að fá greitt í gegnum þennan sjóð. Ég held að það sé svolítið mikilvægt að fá það fram. Það er nefnilega þannig að örugglega einhverjir og jafnvel margir hafa þegið slíkar inneignarnótur í þeirri trú að ekkert annað væri í boði. Ef hv. þingmaður gæti farið yfir það hvort taka eigi á þessu máli væri það gott.