pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir .
Herra forseti. Það er gott að heyra. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og að koma skilmerkilega á framfæri að þessu verði mætt, að þeir sem hafa fengið inneignarnótur geti þá fengið þær endurgreiddar. Það er önnur athugasemd sem kemur frá Neytendasamtökunum í umsögn þeirra. Þeir ræða um útskriftarferðir og aðrar slíkar, að ferðaskrifstofurnar hafi gert sérstakar breytingar á þeim, breytt áfangastað og jafnvel fært til ferðirnar o.s.frv. Gæti hv. þingmaður aðeins komið inn á það? Ef verið er að breyta ferðum ber ferðaskrifstofu, eins og segir í umsögn Neytendasamtakanna, „að tilkynna farþegum um fyrirhugaðar breytingar og veita þeim hæfilegan frest til að samþykkja eða hafna. Sé breytingin veruleg“ — eins og getur verið um að ræða í mörgum tilfellum — „getur ferðamaður afpantað ferðina á grundvelli 13. og 14. gr. laga um pakkaferðir.“ Hann getur þá væntanlega fengið endurgreiðslu.
Gæti hv. þingmaður aðeins farið yfir þennan þátt málsins sem Neytendasamtökin hafa lýst áhyggjum yfir?