150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir .

944. mál
[11:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Neytendasamtökin fengu kynningu á málinu eins og það lítur út núna. Málið á eftir að taka breytingum eins og ég hef boðað. Ég fer betur yfir útfærsluna þegar við mælum fyrir því aftur í framhaldinu. Mörgu sem lýtur að því sem hv. þingmaður nefnir er verið að reyna að mæta í nýrri útfærslu. Það er líka verið að skoða að lengja tímabilið sem áætlað er að nái yfir þennan tíma, frá 12. mars til 30. júní eins og þetta frumvarp gerir ráð fyrir. Hugur okkar stendur til að lengja það um einn mánuð. Við horfum til þess að íþróttaferðir unglinga hafa verið skipulagðar t.d. í júlí. Þó að byrjað sé að fljúga á viðkomandi staði hafa mót t.d. verið felld niður. Þegar ég mæli fyrir breytingartillögunni kem ég frekar inn á nánari útlistun á því hvernig aðilar uppfylla skilyrði til að eiga rétt á endurgreiðslu frá ferðaskrifstofu.