fjárstuðningur til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.
Herra forseti. Fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar mæli ég hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur og þinglýsingalögum. Þetta er nokkurs konar míníbandormur eins og við köllum það hér. Breytingarnar eru eftirfarandi: Við leggjum til í 1. gr. að stuðningslán sem rekstraraðili getur fengið skuli takmarkast við fjögur lán. Áður var talað um í lögum sem við samþykktum hér fyrir nokkrum vikum að lánin gætu verið eitt eða fleiri. Þetta er gert til þess að tryggja það, þar sem umsýsla er töluverð, að halda utan um hvert stuðningslán, að það sé verið að takmarka þau, auk þess, þar sem þessi lán eru með ríkisábyrgð að fullu eða að hluta eftir fjárhæð, skiptir það verulegu máli að það sé ekki ótölulegur fjöldi sem undir liggi.
Þá er lögð til breyting er varðar stuðningslánin en afmörkun sú sem samþykkt var hér var mjög afgerandi og samrýmdist tilgangi stuðningslánanna, þ.e. að aðstoða rekstraraðila við að standa undir kostnaði við að viðhalda rekstri til skamms tíma en ekki til að endurfjármagna eldri lán á hagstæðari kjörum. Aftur á móti hefur verið bent á að margir rekstraraðilar hafa síðustu vikur þurft að taka lán til að mæta tekjumissi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru á meðan stuðningslán hafa ekki enn staðið þeim til boða en samkvæmt mínum upplýsingum er það að gerast þessa dagana.
Þar sem þau lán gegna í reynd sama hlutverki og stuðningslán er lagt til að unnt verði að nýta stuðningslánin til að greiða af eða inn á þau lán sem raunverulega voru til að standa undir og tryggja rekstur þessara rekstraraðila, þ.e. heimildin nær aðeins til lána sem tekin hafa verið til að standa undir rekstrarkostnaði. Ekki má því t.d. nýta stuðningslán til að greiða upp lán sem tekin hafa verið eftir lok febrúar til að endurfjármagna eldri lán, enda telst það ekki til rekstrarkostnaðar.
Þessu til viðbótar er lögð til breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Það er minni háttar breyting til skýrleika, í 2. málslið 2. mgr. 3. gr. laga komi „í verðbréfamiðstöð“ í stað „á skipulögðum markaði“ til að forðast rugling.
Þá leggur efnahags- og viðskiptanefnd til breytingu á bráðabirgðaákvæði laga sem breytt var fyrir nokkru og varðar breytingu á þinglýsingalögum. Þetta skiptir máli vegna þess að við samþykktum hér m.a. að fram til 1. september nk. væru rafrænar undirskriftir þegar kemur að skuldbreytingum eða skilmálabreytingum af lánum, greiðslufresti. Sú heimild rennur út samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu 1. september en efnahags- og viðskiptanefnd er einróma í að leggja það til að þetta bráðabirgðaákvæði verði í gildi til loka þessa árs vegna þess að það er alveg ljóst að nokkur fyrirtæki þurfa á frekari greiðslufresti að halda og ekki síður einstaklingar og þetta úrræði, að geta nýtt rafræna undirskrift og þinglýsingar í þessum efnum, hefur reynst gríðarlega vel og hlýtur að koma til greina að þetta verði framtíðarlausn þegar þar að kemur.
Ég legg til, hæstv. forseti, að að lokinni þessari umræðu gangi frumvarpið beint til 2. umr.