150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[15:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil í byrjun þakka hv. framsögumanni framhaldsnefndarálits meiri hluta fyrir framsögu hans. Það hafa auðvitað, eins og flestum er kunnugt, verið töluverðar umræður hér í salnum um þennan hluta, fyrst samgönguáætlunar og síðan þessa frumvarps sem hér er rætt um, sem sagt stofnunar opinbers hlutafélags um borgarlínu eða opinbers hlutafélags um svokallaðan samgöngusáttmála, en auðvitað hafa efasemdir okkar í Miðflokknum hverfst um efasemdir okkar varðandi borgarlínu og þau markmið sem þar eru sett fram, kostnað og forsendur allar.

Það er ánægjulegt að lesa sig í gegnum þetta framhaldsnefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar. Mig langar að koma inn á nokkur atriði sem þar eru sem mér finnst skipta sérstaklega máli í tengslum við málið allt og framvindu þess og sem gerir það að verkum að í fyrsta lagi eru settar upp svona ákveðnari girðingar hvað fjárhagsleg samskipti ríkissjóðs og hlutafélagsins og eftir atvikum sveitarfélaganna varðar á seinni stigum og síðan mál sem snúa að skipulagsmálum og þá sérstaklega málum Sundabrautar og Keldnalandsins sjálfs.

Mig langar að vekja sérstaklega athygli á setningu sem er í inngangi framhaldsnefndarálitsins, með leyfi forseta, þar sem segir:

„Nauðsynlegt er að hafa það í huga að heildarsamkomulagið verður því að ganga upp til að markmið samkomulagsins náist.“

Þetta segir auðvitað það sem ætti að vera augljóst í þessu öllu en sporin hræða. Það verður auðvitað að vera þannig að sveitarfélögin geti ekki haldið tilteknum skipulagsmálum, ef svo má segja, í gíslingu á meðan önnur rúlla áfram og ég held að það muni skipta miklu máli fyrir hlutafélagið og stýrihóp þess þegar þar að kemur að hafa þessa leiðsögn frá þinginu.

Í framhaldsnefndarálitinu varðandi skipulagsmál og land ríkisins til Keldna segir, með leyfi forseta:

„Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að gert verði sérstakt samkomulag við félagið um afhendingu Keldnalandsins. Þar þarf að kveða á um allar meginforsendur skipulags, þar á meðal nýtingarhlutfall þess. Samhliða þarf að vinna drög að deiliskipulagi vegna nýtingar landsins, undir opinbera starfsemi, til langs tíma, svo sem hvort gera eigi ráð fyrir heilbrigðistengdri starfsemi, svo sem sjúkrahúsi.“

Ég held að það sé mikilvægt að slík leiðsögn liggi fyrir þannig að þessir þættir verði hafðir í huga við þá deiliskipulagsvinnu sem fram undan er og ég skil það þannig að þá þurfi þær meginlínur að verða dregnar áður en Keldnalandið er lagt inn í félagið. Svo heldur áfram hér, með leyfi forseta:

„Mikilvægt er þó að leysa úr skipulagsatriðum varðandi stórverkefni á höfuðborgarsvæðinu, sem m.a. koma fram í þingmáli um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Við útfærslu verkefna framkvæmdaáætlunarinnar verði sérstaklega hugað að greiðri tengingu aðliggjandi stofnbrauta, svo sem Sundabrautar, inn á stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins. Hvað tengingu við Sundabraut varðar þarf að vinna skipulag hennar og Sæbrautarstokks í samhengi.“

Það er mjög mikilvægt að þessi leiðsögn liggi fyrir því að við höfum haft miklar áhyggjur og ég sérstaklega af því með hvaða hætti skipulagsmál Sundabrautar hafa verið hanteruð af Reykjavíkurborg. Síðan vil ég benda sérstaklega á eina setningu, með leyfi forseta:

„Forgangur Borgarlínu má ekki hindra skilvirka ljósastýringu á höfuðborgarsvæðinu.“

Þetta er atriði sem við í Miðflokknum höfðum miklar áhyggjur af, að það yrði innleidd hér svona nútímaljósastýringartækni sem gæti mögulega minnkað stopptíma bifreiða á gatnamótum um 30–40%, en síðan færi það hagræði sem af því næðist allt í vaskinn þegar borgarlínuvagnar færu að trompa, hafa forgang á gatnamótum, og setja þar með allt ljósastýringarkerfið úr skorðum. Því er mikilvægt að þessi leiðsögn liggi fyrir.

Síðan vil ég benda sérstaklega á setningu, með leyfi forseta, undir Hagkvæmni og forgangsröðun framkvæmda þar sem segir:

„Meiri hlutinn ítrekar að allar fjárhagslegar skuldbindingar ríkissjóðs þurfa að hljóta staðfestingu í samgönguáætlun, fjármálaáætlun og fjárlögum hvers árs.“

Þetta er mikilvægt.

Síðan segir í lokin, frú forseti:

„Meiri hlutinn ítrekar að tilgangur félagsins snýr eingöngu að sameiginlegri uppbyggingu samgöngumannvirkja auk þróunar og sölu á byggingarlandi. Ekki er gert ráð fyrir öðrum rekstri.“

Þarna er hið minnsta sagt að þetta félag muni ekki koma að rekstri borgarlínu og mér finnst mikilvægt að það sé ekki eitthvert framhaldslíf sem þetta fyrirtæki eða félag muni öðlast, hvað (Forseti hringir.) rekstur borgarlínu svokallaðrar eða annarra framkvæmda samgöngusáttmálans varðar.