150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[15:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Virðulegur forseti. Enn er margt ósagt í þessu máli. Ég náði aldrei að fara í gegnum alla greinargerðina með frumvarpinu en til að liðka fyrir þingstörfum förum við að segja þetta gott hér í 2. umr., geri ég ráð fyrir, ekki hvað síst vegna þess að það hafa þó verið gerðar ákveðnar breytingar sem felast í framhaldsnefndaráliti meiri hlutans. Þær leysa ekki málið en þær gefa framtíðarstjórnmálamönnum og kjósendum smá von um að hægt verði að vinda ofan af mestu vitleysunni. Ég vil bara í stuttu máli nefna þar nokkur atriði.

Í fyrsta lagi það að í kafla um stofnun félagsins þar sem fjallað er um stjórn er gert ráð fyrir að skapa meiri stöðugleika hvað varðar þá stjórn, í trausti þess að skipuð verði almennileg stjórn núna í fyrstu tilraun. Menn munu víst vera með áform uppi um það. Svo er mikilvægt að hér skuli hnykkt á því að fjárlaganefnd, og þar með þingið, eigi að fá að fylgjast með hugsanlegum framúrkeyrslum sem verða augljóslega margar og ítrekaðar í ljósi reynslunnar af sambærilegum verkefnum erlendis og fyrirmyndum þessarar borgarlínu.

Fjallað er um skipulagsmál Keldnalandsins. Mjög mikilvægt er að það liggi fyrir í hvað stefnir með skipulagsmál svæðisins áður en farið er af stað með að eyða peningunum sem menn ætla að fá fyrir landið. Sérstaklega mikilvægt er að nefndur sé framtíðarstaður fyrir sjúkrahús því að eins og menn þekkja hefur Keldnalandið verið álitið mjög vænlegur kostur fyrir framtíðarsjúkrahús. Vífilsstaðalandið var það líka og að öllum líkindum var það þess vegna sem það land var í miklum flýti afhent Garðabæ og notað í annað. En þarna er von til að Keldnalandið nýtist fyrir framtíðaruppbyggingu heilbrigðisþjónustu og nýs sjúkrahúss.

Svo er ekki hægt að gera of mikið úr mikilvægi þess að Sundabraut sé sett í samhengi við þetta. Sundabraut er gríðarlega hagkvæm framkvæmd, ólíkt borgarlínunni, og miklu ódýrari, a.m.k. helmingi ódýrari. Eftir Sundabraut hefur verið beðið í áratugi. Hún myndi hafa mjög veruleg áhrif á að leysa úr umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins á meðan borgarlínan eykur á þann vanda. Því er mikilvægt að nota tækifærið nú til að ýta á framkvæmdir við Sundabraut.

Hér er einnig áréttað mikilvægi þess að sveitarfélög komi að því að fjármagna framúrkeyrslur. Meginsjónarmið um opinberar framkvæmdir fá hér nokkurt vægi en bent hefur verið á að frumvarpið standist illa lög um opinberar framkvæmdir. Hér liggur þá fyrir að áfangarnir sem fjallað skal um, frumathugun, áætlunargerð, verklega framkvæmdin og skilamat, þurfi allir að liggja fyrir í tæka tíð. Það á ekki hvað síst við um borgarlínuna. Ég vek sérstaklega athygli á því að menn komast ekki hjá því að fylgja lögum um opinberar framkvæmdir nú þegar þeir ætla að láta ríkið um að greiða þetta að mestu leyti.

Loks er komið inn á framtíðarkostnað. Aðeins er minnst á rekstrarkostnað en eins og menn þekkja væntanlega nú þegar liggur ekki fyrir rekstraráætlun um þetta fáránlega dýra og óhagkvæma verkefni. Það eina sem við höfum fyrir okkur í því er reynslan af sambærilegum verkefnum annars staðar og framkvæmdum á vegum sömu aðila, Reykjavíkurborgar ekki hvað síst. Auðvitað óttast maður, og það er mikil synd að ekki skuli vera kveðið fastar á um það í þessu, að ríkið muni sitja uppi með þetta til eilífðar, þann elífðarkostnað, ríkið og vegfarendur á höfuðborgarsvæðinu sem verða beittir refsigjöldum til að halda þessu vonlausa dæmi gangandi. Á ensku er til orðatiltæki sem í lauslegri þýðingu er eitthvað á þá leið að ef þú brýtur það þá borgar þú það. Ég óttast að hér líti Reykjavíkurborg svo á að ef ríkið byggi það þá borgi það. Þetta munum við því miður fá að heyra þegar rekstrarkostnaðurinn, ef að því kemur, fer á fullan skrið. Borgin mun útskýra að hún hafi ekki efni á að reka þetta en ríkið hafi byggt þetta þannig að það verði bara að taka þetta að sér. Ég andmæli því hér með harðlega (Forseti hringir.) að ríkið taki að sér á nokkurn hátt að reka þetta apparat þótt það hafi látið plata sig út í framkvæmdina.