150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[15:18]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Frú forseti. Það er ekki erfitt að gleyma því um hvað þetta mál snýst í því mikla orðaflóði sem hér hefur fossað um það og því langar mig örstutt að vitna í þingmálið sem liggur hér undir. Þetta fjallar um að stofna eða að veita ráðherra heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu með aðild ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar.

Við höfum fagnað því mjög í hv. umhverfis- og samgöngunefnd þegar landshlutasamtök eða sveitarfélög í landshlutum taka sig saman um forgangslista, höfum sagt það mjög til fyrirmyndar þegar þau koma fyrir hv. nefnd og segja: Þetta eru framkvæmdir eins og við viljum. Hér hefur verið stigið skrefinu lengra og hafa beinlínis öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gert sérstakan samning við ríkisvaldið um samgönguinnviði. Sveitarfélög, í hverjum búa tveir þriðju hlutar þjóðarinnar og að stjórnun hverra koma nánast allir stjórnmálaflokkar á Íslandi, ná saman um að þetta sé framtíðarsýn næstu 15 árin.

Þetta eru vissulega háar upphæðir enda er margt undir. Þetta eru ekkert sérstaklega háar upphæðir ef við deilum þessu niður á hvert ár af 15. Þá eru þetta kannski 8 milljarðar á ári. Það er ekkert sérstaklega mikið að mínu viti ef horft er á tölurnar sem hér eru undir. Hver er tilgangur félagsins? Jú, að hrinda í framkvæmd því sem samið var um í umræddum sáttmála.

Meginmarkmið félagsins, forseti, og ég ætla að leyfa mér, með þínu fróma leyfi, að vitna beint í það hér í málinu, skulu vera eftirfarandi:

„a. Að stuðla að greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.

b. Að stuðla að því að loftslagsmarkmiðum stjórnvalda um sjálfbært, kolefnishlutlaust borgarsamfélag verði náð.

c. Að stuðla að auknu umferðaröryggi.

d. Að tryggja skilvirkt samstarf milli ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um trausta umgjörð um uppbyggingu innviða.“

Frú forseti. Að mínu viti er ekki hægt að vera á móti þessum markmiðum enda vona ég innilega að þetta verði núna að lögum. Þetta mun gerbylta samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki rétt sem hér hefur verið sagt að hér hafi verið framkvæmdastopp síðustu tíu árin. Staðreyndin er sú að 2007–2017 fóru 17% af nýframkvæmdafé Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðið. Það er allt of lág upphæð miðað við þann mikla íbúafjölda sem hér býr. Þannig að nú erum við loks að stíga skrefin í jafnri uppbyggingu allra samgönguinnviða eins og hér segir, þar með talið almenningssamgangna. Við erum að stíga inn í það að byggja upp samgöngukerfi sem stuðlar að því að við náum okkar loftslagsmarkmiðum og sem eykur öryggi í umferðinni. Hér eru hjólastígar undir, hér er umferðarstýring, hér eru stofnvegaframkvæmdir upp á tugi milljarða og hér er borgarlína. Þetta er mikið heillaskref og ég hvet alla hv. alþingismenn til að greiða þessu sitt atkvæði.