fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Það er komið hér að lokum umfjöllunar um fjáraukalögin. Ég hef hugsað mér að vera afskaplega stuttorður. Að þessu sinni mun ég ekki flytja neinar breytingartillögur við málið enda þekkjum við hvaða örlög þær fá. Það er margt ágætt í þessum fjárauka. Við í Viðreisn höfum stutt þau fjáraukafrumvörp sem hafa verið lögð fram og við munum halda því áfram. Sem fyrr teljum við ekki nóg að gert. Hins vegar vil ég sérstaklega benda á að það eru tvær tillögur í þessum fjárauka sem ég tel að séu þar ekki síst vegna atbeina okkar í Viðreisn. Það er annars vegar hækkun á framlagi til svokallaðrar Stuðnings-Kríu um 200 milljónir, en það tókst ágætt samkomulag um það í nefndinni og fyrir það ber að þakka, bæði í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og því ber að fagna. Síðan auðvitað það sem birtist hér í fjáraukanum, þó að það hafi ekki verið þar til efnislegrar umræðu, að nú hafa menn ákveðið að fara svokallaða Ferðaábyrgðasjóðsleið í staðinn fyrir inneignarleið en það er akkúrat leiðin sem Viðreisn hafði lagt til og bent á fyrir löngu.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta, það líður að kvöldi. Það væri hægt að segja margt. Margt af því hef ég sagt áður en ég ætla að hafa þetta stutt og læt þetta nægja.