150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

fjáraukalög 2020.

841. mál
[20:51]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Hér erum við áfram að greiða atkvæði um það hvort við getum kannski séð af hátt í 1,5% af þeim tæplega 70 milljörðum sem við erum að setja í björgunaraðgerðir í þessum þriðja fjárauka. Þetta snýr að einskiptisaðgerð fyrir fátækustu samfélagsþegna okkar, þá sem eru á almannatryggingum eingöngu og fá undir 300.000 kr. á mánuði. Þetta snýst um að aðstoða þá sem eru á biðlista eftir að komast inn á SÁÁ og þetta snýst um að veita fjármagn í að auka aðstoð til hjálparstofnana og um leið getu þeirra til að gefa svöngu fólki að borða. Um það snýst þetta mál.

Ég segi já.