150. löggjafarþing — 130. fundur,  29. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:30]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Þetta er mikil gleðistund og við megum öll vera stolt og ánægð með að hafa upplifað þessa stund. En hér erum við að sjá verða að veruleika gríðarlega miklar framfarir í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu öllu. Ég er stoltur af því að fá að taka þátt í þessu. Ég segi bara: Til hamingju Ísland.