150. löggjafarþing — 130. fundur,  29. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Loksins, loksins sjáum við fram á raunverulegar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu, samgöngubætur sem taka mið af fjölbreyttum samgöngumátum og auka valfrelsi einstaklinganna. Við erum með þessu skrefi hér að auka lífsgæði íbúa á höfuðborgarsvæðinu.