breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.
Forseti. Umræða skapaðist í nefndinni um eyrnamörkun. Bara svo að það sé alveg ljóst þá sagði yfirdýralæknir að skorið væri í eyrun á milljón lömbum á ári að óþörfu. Það er hægt að fara aðrar leiðir, eins og hv. framsögumaður málsins nefndi, að eyrnamarka er óþarfa þjáning milljón lamba á ári. Sóttvarnasjónarmiðin sagði yfirdýralæknir að stæðust ekki, þetta væri ekki spurning um það. Ef lömbin fara yfir girðingar eða finnast á merki er þeim lógað. Það sem helst var uppi í nefndinni var að menn vildu halda í þetta út af hefðinni. Þá eru það bara sömu rök og þegar ákveðnar slátrunaraðferðir eru viðhafðar af einhverjum trúarástæðum, þar sem dýr eru skorin á háls og þeim látið blæða út. Þetta er ekki löglegt á Íslandi af því að við viljum það ekki. En nú vilja sumir halda í gömlu mörkin og meiða að óþörfu milljón lömb á ári. Ég vildi að þetta kæmi alveg skýrt fram.
Ráðherra leggur fram frumvarp um að tekið skuli út það sem segir í lögunum í dag, að lömb skuli eyrnamörkuð fyrir lok 12. viku sumars. Ráðherra leggur fram þá breytingu í þessu frumvarpi að heimilt sé að eyrnamerkja lömb og skuli þá miða við að þau séu eyrnamörkuð fyrir lok 12. viku sumars. Ráðherra lagði til að það yrði ekki lengur þannig að það yrði að skera í þessi milljón lömb á ári. Ég veit að hv. þingmaður og framsögumaður málsins, Ásmundur Friðriksson, vildi halda því eins og ráðherra hafði það en meiri hluti nefndarinnar svínbeygði bæði ráðherra og framsögumann og vildi halda inni skyldunni til þess að eyrnamerkja. Það kom alveg skýrt fram hjá yfirdýralækni að það væri óþarft, það meiddi milljón lömb á ári. Bæði dýraverndunarsamtök á Íslandi og Samtök grænkera á Íslandi sögðu að það væri lágmark að skyldan væri ekki lengur inni. En þeir sem samþykktu þetta nefndarálit, m.a. þingmenn Vinstri grænna, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, kröfðust þess að tillaga ráðherra um að ekki væri lengur skylda að skera í lömbin yrði felld brott, að skyldunni yrði haldi inni.
Ég vildi bara að þetta væri ljóst. Ég sagði þeim í nefndinni að ef þetta yrði niðurstaðan þá myndu landsmenn fá að vita það að dýraverndunarsjónarmið fá að víkja hjá Vinstri grænum í þessu máli. Þeir vilja frekar halda inni mörkunum og skyldunni til að marka. Þá þurfa landsmenn að fá að vita það af því að þetta samrýmist ekki stefnu Vinstri grænna. Ráðherrann leggur til að fjarlægja skylduna til að skera í lömbin. Vinstri grænir í nefndinni krefjast þess, þvert á vilja ráðherra og framsögumanns málsins sem báðir eru Sjálfstæðismenn, að áfram sé skylda að skera í milljón lömb á ári.