ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Í nokkur hundruð ár refsaði guð fólki með ævarandi vítislogum fyrir minnstu syndir, svo sem kynferðisbrot. Samfélagið óx upp úr því. Lengi vel, og sennilega lengst af, voru börn lamin til óbóta þegar þau óhlýðnuðust. Feður börðu börnin sín með belti, grátandi yfir því að þurfa að aga þau þannig, þeim til heilla. Sem betur fer uxum við upp úr því sem samfélag en auðvitað aldrei alveg að fullu. Auðvitað tíðkast ofbeldi gegn börnum en sem samfélag viðurkennum við að það sé slæmt vegna þess að sú aðferð hefur brugðist við að fá börnin til að haga sér eins og við viljum. Við þroskuðumst upp úr því vegna þess að það að berja börnin sín er rangt. Það á aldrei að gera það. Hvað annað? spyr einhver. Eitthvað annað, virðulegi forseti. Það eru mörg svör við því en eitt þeirra er: Eitthvað annað, eða ekkert ef til þarf, en ekki það. Við refsum ekki börnum okkar með ofbeldi fyrir að óhlýðnaðist og almennt samþykkjum við ekki lengur að guð dæmi okkur í ævarandi vítisvist fyrir að bregðast einhverjum reglum um kynferðismál eins og t.d. því hafa ranga kynhneigð samkvæmt einhverjum normum eða hvaðeina.
En þegar kemur að vímuefnamálum erum við enn þá það frumstæð að við refsum fólki fyrir að neyta vímuefna og fólk deyr út af því. Það eru þekkt dæmi um að fólk deyi vegna þess að búið er að útskúfa þessum hópi. Hvort sem fólk á við fíknivanda að stríða eða ekki, virðulegur forseti, er það rangt. Það er bara í grundvallaratriðum rangt að beita þeirri útskúfun og þeim fordómum sem endurspeglast ekki bara í löggjöfinni heldur í álitinu, sem löggjöfin veldur, á því að fólk neyti vímuefna.
Þetta umræðuefni er ekki nýtt af nálinni. Við Píratar höfum barist fyrir þessu frá 2013. Á sínum tíma var samþykkt þingsályktun um að stofnaður yrði starfshópur og hann skilaði skýrslu. Ég var sjálfur í þeim starfshópi. Það er búið að skila skýrslu, þetta er orðið að stefnumáli nokkurra flokka og hvaðeina. Það hefur verið farið svolítið vel yfir þetta í fyrri ræðum þannig að ég ætla kannski ekki að halda tæmandi ræðu um allt það ferli. Eftir stendur það sem er svo opinberandi, hversu ógurlega hræddur meiri hlutinn er við það eitt að taka afstöðu til málsins. Hvers vegna? Vegna þess meiri hlutinn vill ekki samþykkja það, virðulegi forseti. Ég held að það sé einfaldlega málið. Þau vilja tala um að íhuga það, þau vilja skoða það aðeins betur árum saman, aftur og aftur. En það er enn þá of mikið að taka af skarið og segja bara: Alþingi gefur þau tilmæli til ríkisstofnana og lögreglunnar að við hættum að berja börnin okkar, að við hættum að refsa fólki fyrir að eiga við vandamál að stríða, fyrir að eiga kannski við vandamál að stríða, fyrir að eiga kannski seinna við vandamál að stríða.
Virðulegur forseti. Við munum vaxa upp úr þessu einn daginn. Spurningin er hvenær. Ég vildi óska þess að það yrði í nótt eða í kvöld. Ég óttast að svo verði ekki. En þá skal það líka að sitja eftir hvers vegna ekki. Er það vegna þess að frelsisunnandi þingmenn úr frelsisunnandi flokkum fá ekki nóg fylgi? Nei, það er ekki vandinn, virðulegur forseti. Er það vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn, með alla sína frelsisást, fær ekki að ráða nógu miklu? Það verður hann sem fellir þetta mál ef það fellur, virðulegi forseti. Nokkrir flokkar eru meira til í frelsið en Sjálfstæðisflokkurinn, tala oftar um það af alvöru, leggja fram mál af alvöru og greiða atkvæði í alvöru frelsinu í vil. Það er hægt að nefna nokkra, Pírata, Viðreisn og Samfylkinguna, sem er vinstri flokkur og stærir sig af því. Hvers vegna er þetta svona? Hvers vegna er það þannig að það kemur frávísunartillaga þar sem á að vinna enn eina skýrsluna, enn eina pælinguna, enn eina skoðunina? Það er vegna þess að þetta kemur úr rangri átt. Þetta er það einfalt. Ef málið væri lagt fram af einhverjum öðrum en flokki í stjórnarandstöðu myndi meiri hlutinn samþykkja það, alla vega nægur hluti meiri hlutans til að það færi í gegn.
Ég lendi oft í samtölum við kjósendur og ég þarf að leiðrétta einhvern misskilning sem fólk hefur um þingið, um það hvers vegna við erum ekki öll alltaf hér í salnum. Og ég segi: Er ekki eðlilegt að við séum ekki alltaf hér í salnum? Er ekki eðlilegt að þetta sé svona og hinsegin, segi ég um eitthvað sem fólk hefur misskilið. Svo segir einhver: Stundum er málum hafnað bara vegna þess að þau koma úr rangri átt. Og, virðulegi forseti, það er þannig. Það er þannig og það er sjúkt, það er galið, það er bilað og það á ekki að vera þannig. Þegar við erum að tala um að hætta að refsa neytendum eigum við alveg að geta litið á þetta mál fyrir það sem það er. Þetta er í þokkabót minnsta mögulega skref sem við getum tekið til að ná þessum árangri. Það hafa ekki komið fram breytingartillögur um málið, hvernig sé hægt að gera þetta einhvern veginn varlegar, vegna þess að það er búið að setja alla varnagla. Við erum með belti og axlabönd. Vonandi beitum við þeim rétt í framtíðinni.
Ég vona innilega að kjósendur, sér í lagi Sjálfstæðisflokksins en líka Vinstri grænna sem hafa talað eins og þau vilji skoða það af alvöru að gera þetta, hugsi sig tvisvar um í næstu kosningum ef þessir tveir flokkar fella þessa tillögu hér í kvöld eða í nótt.