ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér frávísunartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni. Með upphaflega frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, þess efnis að bann við vörslu, kaupum og móttöku efna verði fellt brott. Mikilvægt sé að unnið sé að því að neysla fíkniefna og varsla skammta til eigin neyslu verði ekki refsiverð og að fremur sé lögð áhersla á stuðning en refsingar og fleiri einstaklingum þannig komið til hjálpar en ella. Við meðferð frumvarpsins í nefndinni komu fram mikilvægar ábendingar sem ástæða er til að taka tillit til enda mikilvægt að unnið verði áfram með málið.
Það sem hefur komið fram er m.a. þetta: Málið var reifað og það komu gestir og það var ekki óskað eftir frekari gestakomum fyrir nefndina fyrir jólin. Það er alveg rétt. Síðan eru liðnir margir dagar. Það kemur ekki fram í frumvarpinu að haft hafi verið samráð við lögreglu eða heilbrigðisyfirvöld við gerð þess jafnvel þótt það séu aðilar sem munu vinna mest að þessu málefni. Það er virðingarleysi við málið að hafa ekki samráð á fyrri stigum. Það er virðingarleysi. Ég hef séð hér ýtt á rauða takka frá þingflokki Pírata, Samfylkingar og fleiri vegna þess að samráð hefur vantað, m.a. í dag hafa mörg rauð ljós logað hér vegna samráðsleysis og annarra þátta. Mikil og góð orð hafa verið höfð um það hér á fyrri stigum.
Í öðru lagi fékk málið ekki nægjanlega vinnslu í nefndinni og var tekið hálfklárað út úr henni í stað þess að finna því þann farveg sem skilaði markmiði frumvarpsins í sátt. Það er ekki sátt þegar ekki geta allir verið á málinu. Það er ekki sátt þegar þessi umræða hefur ekki farið fram að fullu í samfélaginu. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Við þurfum að taka þroskaða umræðu úti í samfélaginu líka, ekki bara á lokuðum fundi í velferðarnefnd. Þess vegna skiptir miklu máli að ræða málið að þessari niðurstöðu. Við erum ekki að tala um að hverfa algerlega til fyrri tíma. Við erum að tala um að ræða málið á öllum stigum, í samráði. Það liggur við að þetta orð, samráð, hafi verið fundið upp af Pírötum en það á ekki að viðhafa núna.
Þörf er á frekari skilgreiningu á neysluskömmtum. Á bara að fela ráðherra að ákveða það? Er það nægjanlegt?
Mikilvægt er að reynsla fáist á úrræði eins og neyslurými áður en frumvarpið verður afgreitt. Við stigum mikilvægt skref í vetur sem var að samþykkja að vera með neyslurými vegna þess að við viljum taka utan um veikasta hópinn okkar. Ég held að það sé mikilvægt að þetta mikilvæga skref náist. Þetta er gríðarlega stórt skref sem við erum að taka hér. Við getum alveg tekið það saman. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref en það verður að taka það í litlum áföngum.
Við þurfum líka að hafa samráð og við þurfum að skoða hvernig þetta hefur gengið. Þeir eru að fara þessa leið í Noregi. Er ekki allt í lagi að staldra aðeins við? Ókei, okkur liggur mikið á, það er alveg rétt, en við skulum fara saman þangað, ekki með einhverjum látum. Það hefur verið kallað ofbeldi að rífa mál á sama stigi út úr þessari nefnd. Það hefur oft komið upp í þessum ræðustól að það sé kallað ofbeldi. Ég ætla ekki að segja að þetta sé neitt ofbeldi. Þetta var í samþykkt, og svolítið sérstakri samþykkt, í þessum þinglokasamningum.
Mikilvægt er að skoða betur hvernig verði tekið á upptöku skammta og á neyslu og vörslu barna á fíkniefnum. Hér er því lagt til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar sem feli heilbrigðisráðherra, í samvinnu við dómsmálaráðherra, að semja skýrslu. — Það getur nú verið eitt minnisblað, það þarf ekki að vera hundrað blaðsíðna skýrsla sem tekur einhver ár. Úr því getur komið eitthvað gott. En kannski, eins og kom fram í máli hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar, skiptir nefnilega máli hvaðan það kemur.
Ég skil vel að Píratar og þingmenn þeirra hafa lagt mikið í þetta mál og það má þakka. Það er virðingarvert. Þessu máli hefur verið skilað miklu betur út með samþykkt flutningsmanns heldur en það kom inn. Það ber að þakka. Ýmsum rökum hefur verið tekið sem við, gestir og aðrir hafa bent á. Það er vel. Vonandi verður hægt að koma með eitthvert frumvarp. Og ég skal styðja það, styðja þetta mál þegar það verður lagt fram af fullum þunga. Hérna er verið að breyta frumvarpinu, einn, tveir, þrír. Það er miklu betra að gera þetta í meira samráði, í meiri sátt, þannig að allir geti skrifað undir það. Og síðast en ekki síst verða þau sem vinna við þessi mál, þá er ég að tala um lögregluna og heilbrigðisyfirvöld, að vera sátt þegar þau fá málið fullunnið út úr þinginu.