ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir andsvarið. Þetta er hins vegar frábær frávísunartillaga vegna þess að hér stendur: Og/eða koma með frumvarp eða tillögu að frumvarpi. Ég verð nú bara að segja það í heiðarlegu svari að ég er ekki sátt við frumvarpið eins og það kemur til afgreiðslu núna. Ég verð á rauða takkanum en með þessari frávísunartillögu er ég þó að styðja við markmiðið. Ég vil vinna áfram að því og sjálfsagt hefði ég stutt þingsályktunartillögu þess efnis. Ég verð bara að viðurkenna það. Með þessu er ég að styðja við markmiðið en að hafna málinu eins og það kemur núna inn í þingið.