tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit með breytingartillögu frá efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum, frádráttur vegna kolefnisjöfnunar.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund þá aðila sem upp eru taldir í nefndarálitinu. Nefndin fékk umsagnir og skoðaði einnig umsagnir frá síðasta þingi.
Með frumvarpinu er lagt til að nýr töluliður bætist við 31. gr. laga um tekjuskatt þannig að heimilt verði að draga fjárframlög til kolefnisjöfnunar frá tekjuskattsstofni samkvæmt ákvæðinu, þó að hámarki 0,85% af tekjum samkvæmt B-lið 7. gr. laganna á því ári þegar framlög eru innt af hendi.
Í 2. tölulið 31. gr. tekjuskattslaga er að finna heimild til að draga frá tekjum gjafir og framlög til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála, stjórnmálaflokka og vísindalegra rannsóknarstarfa, þó ekki yfir 0,75% af árstekjum. Í samráði við ráðuneytið leggur nefndin til að í stað þess að nýr töluliður bætist við 31. gr. verði 2. tölulið ákvæðisins breytt þannig að framlög til aðgerða sem stuðla að kolefnisjöfnun bætist þar við. Einnig telur nefndin rétt að miðað verði við sama hámarksfrádrátt og við á samkvæmt ákvæðinu, þ.e. 0,75% af árstekjum.
Loks telur nefndin óþarft að kveða nákvæmlega á um það í lagatexta hvað teljist til framlaga í skilningi ákvæðisins og leggur til orðalagsbreytingar til einföldunar.
Samkvæmt kostnaðarmati sem unnið var á nefndasviði Alþingis er talið að áhrif á ríkissjóð, verði frumvarpið samþykkt, geti orðið neikvæð um á bilinu 200–300 millj. kr. á ári.
Að öllu framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu.
„1. gr. orðist svo:
2. tölul. 31. gr. laganna orðast svo: Einstakar gjafir og framlög til kirkjufélaga, viðurkenndrar líknarstarfsemi, menningarmála, stjórnmálaflokka og vísindalegra rannsóknarstarfa, þó ekki yfir 0,75% af tekjum skv. B-lið 7. gr. á því ári þegar gjöf er afhent eða framlag innt af hendi.“ — Og hér kemur breytingin. — „Hið sama á við um framlög til aðgerða sem stuðla eiga að kolefnisjöfnun, svo sem aðgerða í rekstri til kolefnisjöfnunar, sem og fjárframlög til skógræktar, uppgræðslustarfa og endurheimtar votlendis. Ráðherra skal í reglugerð kveða á um hvaða málaflokkar og stofnanir falla undir þennan tölulið og um framkvæmd hans að öðru leyti.“
Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið skrifa hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Ólafur Þór Gunnarsson, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Smári McCarthy og Willum Þór Þórsson.
Ég vil að lokum þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd kærlega fyrir samstarfið og vinnuna við þetta frumvarp og fagna því náttúrlega sérstaklega að það sé komið hér til 2. umr. og afgreiðslu í þinginu.