150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

gjaldfrjálsar krabbameinsmeðferðir.

37. mál
[00:07]
Horfa

Frsm. velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um gjaldfrjálsar krabbameinsmeðferðir, en framsögumaður þessa máls og 1. flutningsmaður er hv. þm. Anna Kolbrún Árnadóttir. Undir nefndarálit þetta skrifar öll hv. velferðarnefnd, þ.e. sú sem hér stendur, hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir og áheyrnarfulltrúi Viðreisnar, hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson, er samþykk áliti þessu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið til sín fjölda gesta. Þá hefur nefndin einnig fengið umsagnir og minnisblað frá Sjúkratryggingum Íslands.

Með þingsályktunartillögunni er lagt til að heilbrigðisráðherra verði falið að beita sér fyrir því að krabbameinsmeðferðir verði gjaldfrjálsar. Við umfjöllun nefndarinnar komu fram athugasemdir þess efnis að þrátt fyrir að kostnaður þeirra sem glíma við krabbamein væri oft íþyngjandi kynni svo einnig að vera um marga aðra langvinna og lífshættulega sjúkdóma. Bent var á að meðferð vegna sykursýki, margra hjartasjúkdóma, langvinnra lungnasjúkdóma, taugasjúkdóma og fleiri sjúkdóma, kynnu að vera allt eins íþyngjandi og hafa veruleg áhrif á framfærslugetu einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Þótt ekki væri umdeilt að kostnaður einstaklinga vegna krabbameins og meðferðar vegna þess kynni að vera erfiður hjalli getur það einnig átt við um fleiri sjúkdóma. Þá var sérstaklega vikið að afleiðingum sem meðferðir við langvinnum sjúkdómum, eins og krabbameini, gætu haft á tannheilsu og að kostnaði sem af hlýst. Kom fram að sjúkratryggingastofnunin greiði, samkvæmt gjaldskrá, 80% af kostnaði við meðferð sem miðar að því að lagfæra þann skaða sem sjúkdómur eða meðferð hefur valdið sjúklingi. Aðeins er fjallað um gjaldskrá og að hún hefur ekki tekið breytingum um margra ára skeið.

Einnig kom sérstaklega til umfjöllunar staða þeirra sem búið hafa lengi við langvinna sjúkdóma og kunna að hafa fullnýtt vinnutengd réttindi sín, m.a. til veikindaorlofs og greiðslna úr sjúkrasjóðum. Sjúklingar þyrftu þannig að búa við fjárhagsáhyggjur sem haft geta alvarleg áhrif á geðheilsu fólks, sem eykur enn á vanda sjúklingsins.

Markmið tillögunnar er að krabbameinsmeðferðir verði gjaldfrjálsar, en líkt og að framan greinir lúta sömu sjónarmið að því að meðferð við öðrum langvinnum og lífshættulegum sjúkdómum verði einnig gjaldfrjáls. Nefndin telur mikilvægt að undirstrika það markmið að lágmarka eftir fremsta megni kostnað vegna slíkra meðferða. Nefndin leggur til breytingu þess efnis að tillagan taki til fleiri hópa sjúklinga og að metið verði heildstætt með hvaða hætti draga megi úr kostnaði einstaklinga vegna meðferðar þeirra.

Að þessu sögðu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með þeirri breytingu að fela heilbrigðisráðherra að meta hvernig lágmarka megi kostnað sjúklinga vegna langvinnra og lífshættulegra sjúkdóma. Farið er fram á að ráðherra skili Alþingi skýrslu þar að lútandi eigi síðar en 1. mars 2021.

Þá er einnig fyrirsögn tillögunnar breytt þannig að hún hljómar þannig: Tillaga til þingsályktunar um ráðstafanir til að lágmarka kostnað vegna krabbameinsmeðferðar og meðferðar við öðrum langvinnum og lífshættulegum sjúkdómum.

Er lagt til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með umræddum breytingum.