150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu.

38. mál
[00:15]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Frú forseti. Við höfum nú hlýtt á framsögumann velferðarnefndar, hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur, flytja okkur álit velferðarnefndar varðandi þessa tillögu um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í íslensku samfélagi.

Þetta er mikilvægt mál og gott sem þingflokkur Samfylkingarinnar stendur sameinaður um. Það er ánægjulegt að fá að taka til máls á þessu síðkvöldi við þinglok og fjalla ofurlítið um efni þessarar tillögu umfram það sem hv. framsögumaður hefur þegar gert. Á Íslandi hafa aldrei verið fleiri innflytjendur en nú um þessar mundir og hefur þeim fjölgað hratt, eins og kom fram hjá hv. framsögumanni, undanfarin ár þótt eðlilega sé eitthvert uppihald á þeirri þróun eins og nú hagar til um gjörvallan heiminn.

Hlutfall innflytjenda á Íslandi er mjög nálægt því sem gerist og gengur meðal Evrópuþjóða almennt, eða um 14%. Fólk er á faraldsfæti um heimsbyggðina af ýmsum ástæðum. Meiri hluti innflytjenda flytur að eigin ósk, aðeins lítill hluti er að flýja átök og ofsóknir. Það er hins vegar óskaplegt hlutskipti þeirra sem í hlut eiga og þótt við leysum ekki þann vanda hér á litla Íslandi getum við ekki látið sem ekkert sé og skellt skollaeyrunum. Samkvæmt nýrri skýrslu Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna hefur 1% jarðarbúa, eða nærri 80 milljónir manna, orðið að flýja heimili sín vegna stríðsátaka og ofsókna. Það er hins vegar talið að alla vega 500 milljónir manna séu skilgreindir sem farendur í heiminum, fólk sem er á faraldsfæti í leit að öryggi og betra lífsviðurværi fyrir sig og sína nánustu, að leita sér að öruggu skjóli og öruggri framtíð fyrir börnin sín.

Frú forseti. Íslendingar mælast með jákvæðustu viðhorf til innflytjenda og fjölmenningar í Evrópu auk þess sem meiri hluti þeirra vill að ríkisstjórnin veiti mörgum hælisleitendum dvalarleyfi. Við trónum þarna á toppinum með Írum og Svíum. Þetta eitt og sér þarf kannski ekki að koma á óvart þegar við horfum til sögu okkar. Íslendingar hafa í gegnum tíðina verið talsvert á ferðinni, sótt heim aðrar þjóðir og valið að búa þar um lengri og skemmri tíma. Þeir þekkja hvað það er að setjast að á framandi slóðum. Oftast hafa Íslendingar valið þetta af fúsum og frjálsum vilja, viljað kanna heiminn og víkka sjóndeildarhringinn. En þeir tímar hafa komið í sögu okkar að fólk flúði hreinlega örbirgð og vesöld, atvinnuleysi og fátækt. Sem dæmi fluttu þannig a.m.k. 14.000 Íslendingar til Vesturheims á ofanverðri 19. öldinni og skemmst er að minnast þeirra þúsunda sem fluttu frá landinu í hruninu fyrir rúmlega áratug til annarra landa í leit að betra hlutskipti. Það eru rúmlega 46.000 íslenskir ríkisborgarar með skráða búsetu í útlöndum og íslenska ríkisborgara er að finna í a.m.k. 118 af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Víða flækist frómur. Þess vegna er það nú svo að við ættum að skilja hlutskipti þeirra vel sem þurfa á skjóli að halda, þeirra sem velja sér griðastað á Íslandi.

Frú forseti. Rannsóknir sýna að þær þjóðir sem leggja áherslu á og setja í forgang vandaða aðlögun innflytjenda að vinnumarkaði og samfélagi uppskera mestan ábata. Mikilvægt er að stjórnvöld hafi frumkvæði að jákvæðri samfélagsumræðu og aðlögun — við notum kannski það orð þó að það sé ekki alveg fyllilega nógu gott — en hún þarf að vera tvíhliða. Það er ekki bara aðlögun annars, það er aðlögun beggja, hún þarf að vera gagnkvæm. Þarna ræður viðhorf heimafólks auðvitað úrslitum um hvernig til tekst. Við eigum líklega langt í land með að geta sagst standa framarlega í móttöku innflytjenda en við gerum ýmislegt gott. Við gerum þetta með hjartanu og það hefur tekist mjög vel varðandi skipulag móttöku flóttafólks víða á landinu svo að aðdáun vekur.

En okkur skortir stefnu í þessu. Við gerðum framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda árið 2016. Sú áætlun var tímabundin og er runnin út. Stefna í þessum málefnum á aldrei að renna út. Hún á að vera í stöðugri endurnýjun og þarf að vera sílifandi. Við þurfum að vera vakandi. Þessi framkvæmdaáætlun, sem samþykkt var árið 2016, var vönduð og ágæt á sína vísu. Hún var með tölulegum markmiðum og hún var verðlögð. Því miður verður að segjast eins og er að mjög takmarkaður hluti af þeim fjármunum sem ætlaðir voru í verkefnið komust í vinnu. Að einhverjum atriðum var unnið en við þurfum að gera betur, ekki bara af hálfu stjórnvalda og stofnana, við þurfum að efla enn betur og meira almennan skilning, tala fyrir mannúð, tala fyrir umburðarlyndi.

Frú forseti. Innflytjendur standa höllum fæti hér á Íslandi eins og við þekkjum svo víða í löndunum í kringum okkur. Við sjáum þetta á vinnumarkaðnum, atvinnuleysi er t.d. meira hér meðal innflytjenda en innfæddra. Reynsla annarra þjóða sýnir einnig að launakjör innflytjenda eru lakari en innfæddra. Samkvæmt úttektum nemur það 20–30% í sambærilegum starfsgreinum. Þeir eiga líka á brattann að sækja á húsnæðismarkaði og það eru til hér í kringum okkur á Íslandi hörmuleg dæmi um slíkt. Það er svartur blettur á samfélaginu og þann blett þurfum við að afmá. Mun færri innflytjendur en innfæddir hefja framhaldsnám og enn færri ljúka framhaldsnámi. Hátt brottfall er staðreynd meðal innflytjenda og það er takmarkaður stuðningur í skólakerfinu við innflytjendur almennt. Við metum með ófullnægjandi hætti menntun innflytjenda og viðurkennum ekki vel fagleg réttindi. Í Evrópu er áætlað að 22% innflytjenda hafi menntun umfram það sem krafist er í viðkomandi starfi á móti 13% innfæddra. Fjölgun innflytjenda er mikil hjá okkur miðað við nágrannalöndin en við erum reynsluminni.

Innflytjendur hafa reynst okkur frábærlega vel. Þeir hafa verið burðarásinn í atvinnulífinu undanfarin ár, í ferðaþjónustu og í byggingaiðnaði. Við værum ekki á þeim stað sem við erum í dag í þessum uppbyggingarfasa ef þeirra hefði ekki notið við. Það má nefna að Svíar og Kanadamenn hafa þróað með sér kerfi í innflytjendastefnu sinni og njóta þess í betri þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu. Við eigum að læra af reynslu annarra þjóða. Við skulum vinna að því að gera það hluta af samfélagssáttmála okkar að vera þjóðin sem veit og skilur hvað innflytjendur skipta miklu máli. Þess vegna á tillaga okkar í Samfylkingunni um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu erindi við Íslendinga. Við eigum að vera jákvæð, fordómalaus og taka fagnandi þeim sem vilja gerast landsmenn og taka þátt í lífi og störfum á Íslandi. Þessi tillaga okkar í Samfylkingunni er dálítið tæmandi og það má sjá hvernig við lítum á þessi málefni. Hún nær frá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og við fjöllum um atvinnulífið og velferðarmálin. Það er von okkar að hæstv. ráðherra taki þessa tillögu og vinni úr henni góða stefnu sem verður síðan kynnt okkur sem allra fyrst.

Að lokum, frú forseti, vil ég þakka hv. velferðarnefnd fyrir sitt vandaða starf og undirbúning að þessari tillögu sem nú fær vonandi brautargengi og er að verða ferðbúin til þess að takast á við lífið eins og það gerist best á Íslandi.