150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.

714. mál
[01:28]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Hv. þingmaður heldur uppteknum hætti og segir ekki eitt orð um afstöðu sjálfs sín til mála þegar hann gerir grein fyrir atkvæði sínu. Það er ekki við hæfi að nota þetta ræðuform (Gripið fram í.) með þessum hætti. Hv. þingmaður beinir eingöngu orðum að öðrum þingmönnum og afstöðu þeirra en segir ekki eitt orð um afstöðu sjálfs sín þegar hann gerir grein fyrir atkvæði sínu. Forseti hefur áður átalið það hjá fleiri þingmönnum.