150. löggjafarþing — 130. fundur, 30. júní 2020.
breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu.
714. mál
Herra forseti. Við í þingflokki Samfylkingarinnar greiðum atkvæði gegn þessari tillögu meiri hluta nefndarinnar og ótrúlegt en satt kem ég hingað upp til að lýsa yfir stuðningi við hæstv. ráðherra og leið sem hann lagði til. (Gripið fram í.) — Já, skemmtileg tilbreyting. Það kom skýrt fram í meðförum nefndarinnar að þetta meiðir lömbin og það er sömuleiðis smithætta og fleira. Það er bara ekki ásættanlegt og því greiðum við atkvæði gegn þessari tillögu.