ávana- og fíkniefni.
Forseti. Ég greiði atkvæði með því að hætta að refsa fíklum núna. Það getum við gert núna, það er í boði núna. Ef menn skipta um atkvæði þarna uppi á töflunni þá er það í boði núna, það verða gild lög strax í dag.
Hv. þingmaður Vinstri grænna segir að hann treysti því að heilbrigðisráðherra muni leggja fram frumvarp en háttsettur aðili innan Vinstri grænna sagði við okkur Pírata að heilbrigðisráðherra treysti sér ekki til að leggja fram svona frumvarp. (Gripið fram í.) Ef það er ekki satt þá er það ekki satt, en það var það sem okkur var sagt. Við sögðum: Við erum tilbúin að breyta frumvarpi okkar í þingsályktunartillögu sem skyldar ráðherra til að leggja fram frumvarp eigi síðar en í lok árs. Okkur er sagt að heilbrigðisráðherra treysti sér ekki til þess. Annaðhvort var verið að segja okkur ósatt eða hv. þingmaður veit ekki betur þegar hann segir þetta í pontu og reynir að segja alþjóð og kjósendum Vinstri grænna að það sé staðan. Ég ætla að vona að það sé staðan en ég treysti því ekki af því að það á alltaf að bíða og bíða. (Forseti hringir.) Það kostar mannslíf.
Ég greiði atkvæði með því að í kvöld hættum við að refsa fíklum.