ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Mér finnst málflutningur stjórnarmeirihlutans sem hér hefur talað hafa einkennst af fyrirslætti á fyrirslátt ofan. Málið hefur verið rætt í misseri, í mörg ár. Ég hef nokkrum sinnum tekið þátt í kosningabaráttu og við höfum ávallt verið spurð um það sem frambjóðendur hver stefna okkar og sýn sé í þessu máli. Skipaðar hafa verið nefndir, niðurstöðum hefur verið skilað og ávallt hefur niðurstaðan verið sú að ekki eigi að refsa veiku fólki. Út á það gengur þetta mál. Og loksins fáum við tækifæri til að greiða atkvæði með slíku máli. Þá segi ég: Já, þetta er í anda stefnu Viðreisnar. Þetta er í samræmi við áherslur Viðreisnar. Þess vegna styð ég þetta mál af því að við refsum ekki veiku fólki. Við tökum utan um það.