ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Við vildum ekki að þessu máli yrði vísað til ríkisstjórnarinnar. Það er satt og rétt. Enda höfum við ekki séð neitt bóla á vinnu í átt að afglæpavæðingu neysluskammta þau þrjú ár sem liðin eru af þessu kjörtímabili. (Gripið fram í.) Við buðumst hins vegar til að breyta málinu í þingsályktunartillögu þar sem heilbrigðisráðherra yrði falið að afnema refsingar við neysluskömmtum fyrir lok þessa árs, leggja fram frumvarp þess efnis. Í þá sáttarhönd vildu þingmenn meiri hlutans ekki taka. Nú erum það við sem eigum að heita frekjurnar í þessu þingi fyrir að krefjast atkvæðagreiðslu um málið. Nei, við vildum ekki vísa því til ríkisstjórnar í óvissan farveg. Við vildum skýra tímalínu. Við vildum skuldbindingu af hálfu þessarar ríkisstjórnar, sterkari skuldbindingu en er að finna í stjórnarsáttmálanum. Augljóslega.