150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

ávana- og fíkniefni.

23. mál
[01:48]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Herra forseti. Markmið frumvarpsins er afar gott og við eigum að einhenda okkur í að hjálpa fólki úr fíkniefnaneyslu og reyna að draga úr henni. Ég tek undir það sem fram hefur komið hér, að umræðan hefur þroskast mjög hratt. En það er erfitt að segja að frumvarpið sjálft sé orðið fullþroskað. Svona mál krefst mikils undirbúnings og má nefna ýmis dæmi um það sem upp á vantar. Eitt er t.d. að refsiréttarnefnd var ekki gefið tækifæri til að skila inn umsögn, en hlutverk hennar er einmitt að fylgjast með þróun á sviði refsiréttar.

Ég er hjartanlega sammála flutningsmönnum frumvarpsins um að núverandi kerfi hefur gengið sér til húðar og rétt er að nálgast fíkniefnavandann frekar sem heilbrigðisvandamál. Frumvarpið byggir að mestu leyti á tillögum í skýrslu hæstv. ráðherra Kristjáns Þórs Júlíussonar, um afnám fangelsisrefsinga fyrir vörslu á neysluskömmtum. Þetta frumvarp virðist ganga örlítið lengra en þar er lagt til. Við höfum stigið mörg skref í átt að þeirri niðurstöðu sem birtist í skýrslunni. Þar má nefna breytingar á sakavottorðum, lögfestingu heimildar til að starfrækja neyslurými, aðgengi að hreinum sprautubúnaði og eflingu rannsókna- og forvarnastarfs. Og við erum hvergi nærri hætt. Ég mun halda áfram þeirri vinnu sem snýr að mér í dómsmálaráðuneytinu og ég þori að gera það.