150. löggjafarþing — 131. fundur,  30. júní 2020.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir .

944. mál
[02:19]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er hið besta mál að mörgu leyti. Upprunalega lagði ráðherra til að farin yrði sú leið að fólk sem átti kröfur um að fá endurgreitt fengi þeim skipt út fyrir inneignarnótur. Eins og kom fram í meðferð atvinnuveganefndar myndi það stangast á við stjórnarskrána þar sem ekki væri gætt meðalhófs, ekki farnar aðrar leiðir sem hefðu verið færar. Því var ýtt til hliðar og beðið. Að lokum kom ráðuneytið með aðra tillögu sem var í raun mjög svipuð og sú sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafði lagt til í upphafi. Það hefði kannski átt að hlusta á hana fyrr. Útfærslan varð að lokum sú að fólk gæti leitað til Ferðaábyrgðasjóðs. Nei, þá komu atriði varðandi eignarréttinn, að kannski segðu ferðaskrifstofurnar: Nú erum við komin í lánafyrirkomulag við ríkið sem við viljum ekki. Sú leið var því ekki farin. Því var ýtt út af borðinu næst. En að lokum lönduðum við því á þann hátt að fyrirtæki sem vilja greiða þessar kröfur út fá þá fjármuni lánaða hjá ríkinu á ágætum kjörum. Ríkið er með betri lánakjör en þetta (Forseti hringir.) þannig að kannski tapar það ekki neinu á þessu. Ferðaskrifstofur fá þessa peninga lánaða og geta greitt þá út. Neytendur fá þessa peninga greidda. Þetta er því að mestu leyti gott mál. (Forseti hringir.) Það mætti þó setja einhverja fyrirvara varðandi ríkisábyrgð en almennt er þetta gott.