framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands gerir kunnugt:
„Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 27. ágúst 2020 kl. 10.30.
Gjört á Bessastöðum, 19. ágúst 2020.
Guðni Th. Jóhannesson.
________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til áframhaldandi þingfundastarfa á 150. löggjafarþingi, svo sem ákveðið var við frestun þingfunda í lok júní.