150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[13:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sú mikla skuldasöfnun sem ég rakti í framsöguræðu minni skýrist af því að við erum í raun og veru að viðhalda útgjaldastigi eldri hagvaxtar. Hagvöxturinn eins og hann var skapaði nægar tekjur fyrir þessu útgjaldastigi og við tökum ákvörðun um að fara ekki í harkalegan niðurskurð á opinberum útgjöldum heldur viðhalda þjónustustiginu í þeirri trú að við séum að glíma við tímabundið ástand og að okkur muni auðnast að byggja aftur upp landsframleiðsluna. Það er í raun stefnan sem við erum að marka hér.

Skuldaaukningin er vegna þess að á þessu ári safnast upp 300 milljarða halli og á næsta ári rúmlega 200 milljarða halli og áfram verður hallinn gríðarlegur, jafnvel á öðru ári, sem sagt 2022, tvö ár frá þessu ári. Þá erum við enn þá að glíma við gríðarlega mikinn halla og jafnvel tvö, þrjú ár eftir það, en með hagvexti. Ég hef trú á því að við getum gert betur en nýjustu hagspár segja til um varðandi þriðja og fjórða árið héðan í frá. Ég held að sagan sýni það líka (Forseti hringir.) að það er gríðarlegur sveigjanleiki í íslenska hagkerfinu. Með slíkum hagvexti getum við haldið skuldahlutföllum niðri jafnvel þótt við séum í hallarekstri.