150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[13:29]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú er útlit fyrir að verðbólga sé að fara af stað, hún er komin í um 3–4%, gengið er frjálsu falli og svörtustu spár segja að það gæti farið í halla upp á 64% af vergri landsframleiðslu, sem eru 600–700 milljarðar. Sporin hræða. Í hruninu var ákveðinn hópur skilinn eftir. Í honum var láglaunafólk, eldri borgarar og öryrkjar. Þau fengu ekki það sem þeim var lofað og hafa ekki fengið kjaragliðnun leiðrétta. Ég sé ekki neins staðar þarna að gera eigi nokkuð fyrir þann hóp og spyr því hæstv. ráðherra: Er það rétt? Er neysluvísitöluhækkun um hver áramót það eina sem sá hópur á að fá, ekkert annað?