breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en hann svaraði því ekki hvort eigi að gera eitthvað fyrir þá sem eru hjá almannatryggingum, eldri borgara og öryrkja. Eiga þeir að fá eitthvað meira en 3%? Á að bæta þeim upp gengissveiflur? Á að bæta þeim upp þá ótrúlegu verðhækkun sem hefur orðið á mat og öðrum nauðsynjum eða á ekki að gera það? Ég las grein í blaði nýlega þar sem kemur fram að leyfi fyrir laxeldi í Noregi var selt á 30 milljarða, sama er ókeypis hér. Ef þeir hefðu þurft að borga sama hér heima fyrir laxeldið hefðu það verið 40 milljarðar. Er það ekki eitthvað sem við gætum náð í og komið til eldri borgara, öryrkja og heilbrigðiskerfisins?