breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Við erum með lög sem tryggja með sjálfvirkum hætti að tilfærslukerfin okkar taki breytingum um hver áramót þannig að tekið er mið af því sem hærra er af launabreytingum í landinu eða verðbólgu. Þannig að ef spurt er hér beint út hvort ekki standi til að verja fólk fyrir áhrifum verðbólgunnar í bótakerfunum þá er svarið í lögunum nú þegar og ekki stendur til að breyta því. Við munum gera breytingar í samræmi við það sem skrifað er í lög. Þarna hefur stundum verið sagt að fólk sé með bæði belti og axlabönd. Ég skal ekkert fullyrða um það. Ágreiningur hefur verið um útfærslu á nákvæmlega þessu ákvæði en það er hins vegar ástæðulaust að vekja upp einhverjar hugmyndir um það að ríkisstjórnin eða þingið, ef því væri að skipta, sé með það á prjónunum að draga úr verðgildi bótanna. Það er algerlega innstæðulaust.
Varðandi laxeldið þá höfum við einmitt nýverið fært í lög gjaldtöku vegna fiskeldis í landinu sem, eins og skrifað hefur verið í stjórnarsáttmálann, vex að umfangi eftir því sem greinin (Forseti hringir.) tekur við sér og verður stærri að umfangi.