150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[13:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svarið við spurningunni er í raun og veru bara það að markmiðið er að draga eins mikið og raunhæft er úr atvinnuleysi með því að beita ríkisfjármálunum og því eru einhver ytri mörk sett varðandi lántöku og hallarekstur inn á næstu ár. Við teljum að við höfum náð mjög góðum árangri með opinberum aðgerðum á þessu ári. Við erum að setja 80 milljarða út í hagkerfið á þessu ári í hlutabætur og í gegnum atvinnuleysisbætur til fólks þannig að það geti framfleytt sér. Að öðru leyti er ekki við því að búast að inn í þingið komi við aðstæður eins og þær sem við stöndum núna frammi fyrir stefna þar sem við setjum æskilegt atvinnustig inn sem markmið. Það er ekki við því að búast, ekki frekar en þegar menn fjalla um dauðsföll í umferðinni og ætla að draga úr þeim. Segjum að þau hafi verið 50, menn segja þá: Við ætlum að reyna að ná þeim niður í 25. Það er ekki vegna þess að menn stefni að því að 25 manns deyi í umferðinni næsta árið heldur eru þeir að reyna að breyta ástandi. Með nákvæmlega sama hætti erum við að reyna að draga úr atvinnuleysinu og við fáum síðan mat á áhrifum aðgerða okkar frá þeim sem (Forseti hringir.) vinna greiningarvinnuna.