breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Ég hygg að ef menn myndu líta aftur til, segjum ársins 2012, sjái þeir mjög greinilega að þær áherslur sem ég hef staðið fyrir í þessu efni og þær ríkisstjórnir sem ég hef átt aðild að hafa einfaldlega margfaldað framlögin til þessara málaflokka. Við erum að gera það með sérstökum aukafjárlögum á þessu ári, að setja inn í samkeppnissjóðina og tryggja að þau verkefni sem hafa kannski ekki hlotið styrki fram til þessa komist aftur til skoðunar. Síðast í gær var verið að úthluta og ákvarða varðandi styrki. Við hyggjumst gera það áfram.
Spurt er hvort við ætlum að hraða og auka og bæta í. Ég tel að við höfum sýnt það nú þegar að við erum að gera það og við ætlum að halda áfram að gera það. Við erum hins vegar ekki búin að taka ákvörðun um að það verði viðvarandi átaksverkefni, en það tímabil sem við erum núna að taka ákvörðun um, þ.e. þetta ár, næsta ár, eftir atvikum árið 2022, erum við að ræða um þetta og ég hygg að það muni líka koma mjög skýrt fram í nýrri stefnu Vísinda- og tækniráðs.