breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Við ræðum endurskoðaða fjármálastefnu sem að sjálfsögðu þarf að taka mið af þeim fordæmalausu aðstæðum sem íslenskt hagkerfi er að ganga í gegnum. Ég vil hins vegar minna á og rifja upp að við þurftum einnig að endurskoða fjármálastefnu í fyrra og það var fyrir Covid. Það sýnir á hversu veikum grunni þessi fjármálaplögg ríkisstjórnar byggja oft á. Þegar sú stefna var rædd, sem þurfti að endurskoða ári eftir hún var sett, bentum við á að margt í henni væri afskaplega óraunhæft, jafnvel byggt á óskhyggju. Ég vil sömuleiðis minna á að sveiflan í fyrra í ríkisfjármálum var upp á 70 milljarða. Það var fyrir Covid. 70 milljarðar til verri vegar. Ég vildi draga þetta fram vegna þess að nú erum við að líta aðeins til framtíðar með þessari stefnu og munum ræða innan tíðar fjármálaáætlun.
Ég tel enn þá að hér sé verið að byggja á of bjartsýnum spám. Gert er ráð fyrir 5% hagvexti strax á næsta ári. Það er ekki gert ráð fyrir neinum gengisbreytingum íslensku krónunnar. Gert er ráð fyrir minnkandi atvinnuleysi og að verðbólga verði lág. Auðvitað er þetta allt eitthvað sem ég get tekið undir að við viljum sjá en mér finnst það ekki vera raunhæft. Við höfum sagt það áður: Við þurfum að byggja á raunhæfum spám. Við höfum ekki séð það í þau þrjú ár sem þessi ríkisstjórn hefur setið. Það er alltaf sama óskhyggjan sem þessi plögg, fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög, byggjast á. Hvenær ætlar ríkisstjórnin að læra? Það má líta til annarra hagspáa en Hagstofunnar, eins og við höfum tekist hér á um.
Ísland er að ganga í gegnum eina dýpstu kreppu í 100 ár og mér finnst viðbrögð ríkisstjórnarinnar ekki vera nægjanleg. Ég eyddi sumrinu í að stúdera kreppufræði, ef svo má segja, stúdera hvernig ríkisstjórnir brugðust við í kreppunni miklu fyrir hartnær 100 árum. Ég skoðaði sömuleiðis afskaplega vel hvað ríkisstjórnin gerði 2008 og 2009 eftir bankahrunið. Það var samhljómur hjá sérfræðingunum: Helstu mistök ríkisstjórnarinnar voru að gera of lítið. Ráðherra hefur sagt að hann vilji frekar gera meira en minna en það er bara ekki raunin. Við sjáum það á vettvangi fjárlaganefndar þegar við höfum fengið gesti sem hafa einmitt verið að kalla eftir frekari aðgerðum. Það er nánast ekki hægt að gera of mikið við svona aðstæður, þegar eftirspurnin fellur gjörsamlega niður úr öllu valdi. Við þurfum að taka þetta alvarlega og við þurfum að skapa eftirspurn, opinbera eftirspurn, á meðan eftirspurnin er hrunin hjá einkageiranum. Það kenndi Keynes okkur fyrir 100 árum. Þetta gerði Roosevelt. Þetta eru hægri og vinstri stjórnir að gera alls staðar.
Auðvitað veit ég að ríkisstjórnin er að gera ýmislegt gott en ég brýni hana aftur til góðra verka og að gera meira. Það er hægt að gera meira, ráðherra og ríkisstjórnin hefur pólitískan stuðning til að gera meira því að annars verður vandinn meiri og það vill að sjálfsögðu enginn. Hér er verið að kalla eftir samheldni og samstöðu og við í stjórnarandstöðu höfum sýnt hana. Við höfum verið krítísk á það sem betur má fara, fyrr má nú vera, við erum aðhaldið, en við höfum kallað eftir frekari aðgerðum.
Lítum t.d. á atvinnuleysið. Ég ætla að nefna tvær tölur. Það eru 20.000 manns atvinnulaus á Íslandi. 20.000, það hefur sjaldan verið eins hátt og það er spáð að atvinnuleysið aukist með haustinu. Önnur tala: Það hafa 20.000 störf horfið af íslenskum vinnumarkaði, þannig að vinnumarkaðurinn er búinn að minnka og síðan er atvinnuleysi. Þetta eru rosalegar tölur. Atvinnuleysi er efnahagslega og félagslega og heilbrigðislega ömurlegt fyrir fólk sem lendir í því. Það er mikil sorg sem fylgir atvinnuleysi. Að sjálfsögðu er það efnahagslegt högg en það er líka bara högg fyrir manneskjuna og fjölskylduna sem reiddi sig á viðkomandi tekjur. Við búum í dýru landi og við þurfum, eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir hefur ítrekað bent á, að dreifa byrðunum. Við getum ekki látið þær tugþúsundir Íslendinga, sem eru að verða atvinnulaus, bera byrðarnar. Það lifir enginn, hæstv. ráðherra, á 240.000 kr. eftir skatt. Það gerir það enginn. Við þurfum að grípa þennan hóp betur. Þetta eru vinir okkar, samborgarar, ættingjar. Þetta eru svo gígantískar tölur að við verðum að gera þessu fólki kleift að geta lifað hér því að annars fáum við einfaldlega skuldavanda fólksins, það hættir ekki að lifa.
Ég hef skoðað sömuleiðis þá spurningu, tók þátt í því debatti í sumar: Munu hækkandi atvinnuleysisbætur draga úr atvinnuþátttöku eða letja fólk til að leita sér atvinnu? Nei. Þetta hafa hagfræðingar rifist um og ég er búinn að skoða rannsóknir frá Yale, Harvard og Moody's, það er heilmikil umræða um þetta í Bandaríkjunum, sem sýna þvert á móti að þetta gerist ekki. Í Bandaríkjunum eru atvinnuleysisbætur meira að segja orðnar hærri en lágmarkslaun. Þetta dregur samt ekki úr atvinnuþátttöku eða leit að atvinnu þegar atvinnuástandið er með þeim hætti sem það er. Það vantar atvinnu á Íslandi, það kýs enginn að vera á bótum. Auðvitað er hægt að finna einhver dæmi um það en við skulum ekki taka svona grundvallarumræðu um einhvern afmarkaðan, lítinn undantekningarhóp. Almennt séð vilja Íslendingar vinna, fólk vill vinna. Það vill gera það en það er ekki vinnu að finna. Þess vegna þurfum við að taka utan um þann hóp með miklu myndarlegri hætti. Hækkum atvinnuleysisbætur, grunninn. Ég skal lofa hæstv. ráðherra að fólk mun samt halda áfram að leita sér að vinnu og leita sér að vinnu við hæfi. Við skulum hafa það í huga.
Þegar við hækkum atvinnuleysisbætur aukum við neysluna því að fólk sem er með lágar tekjur hefur ekki annað val en að eyða tekjum sínum. Það koma margfeldisáhrif af því. Þetta skiptir máli til að búa til eftirspurnina. Ef einhver er með 240.000 kr. eftir skatt þá eyðir hann auðvitað öllu sem hann á. Hann er kominn í þá stöðu. Við hljótum að vera sammála um að í svona djúpri kreppu sem er verri en 2008 verðum við að reyna að koma í veg fyrir fátækt. Langtímaatvinnuleysi veldur svo mikilli sorg og sóun og er eitthvað sem við getum öll verið sammála um að við þurfum að bregðast við.
En við þurfum sömuleiðis að gefa þessu fólki von. Ég sé satt best að segja ekki mikið jákvætt í kortunum. Við höfum kallað eftir því í Samfylkingunni að fá fjárfestingarátak. Hvar er það? Í fyrsta skipti sé ég í plaggi frá ríkisstjórninni að það er vísað í fjárfestingarátak 2023 og áfram. Það er jákvætt. Ég hef auðvitað ekki séð það átak en ég vona svo sannarlega að það verði myndarlegt og gott, bæði átak sem lýtur að því að styrkja hið opinbera en líka einkaframtakið. Nýsköpun er töfraorð í allri kreppu, styrkir einkamarkaðinn, en við þurfum líka að styrkja hina opinberu innviði. Margir þeirra voru í klandri fyrir Covid. Munið þið umræðuna um Landspítalann í janúar, áður en Covid kom? Þá notaði starfsfólk Landspítalans orð eins og neyðarástand. Það var ekki orð frá stjórnarandstöðunni. Það var víða vandi í opinberum innviðum fyrir Covid, hvað þá núna.
Þess vegna átti ég debatt við hæstv. ráðherra varðandi aðhaldskröfuna. Hún skiptir máli. Ef hún er svo lítil, eins og hæstv. ráðherra sagði í andsvari við mig, af hverju sleppir hann henni ekki? Af hverju erum við að halda í aðhaldskröfu gagnvart skólum, öldrunarþjónustu og spítölum? Það er engin þörf á því og rekstur þessara aðila er þaninn til hins ýtrasta núna. Ef þetta skiptir svona ofsalega litlu máli, af hverju ekki að sleppa því? Þetta eru reyndar nokkrir milljarðar. Nokkrir milljarðar eru nokkrir milljarðar, við erum orðin svolítið blind á tölur en þetta skiptir máli.
Veit forstjóri Landspítalans t.d. að það er aðhaldskrafa á hann næstu þrjú árin? Veit forstjóri heilsugæslunnar að það er aðhaldskrafa? Samkvæmt þessu nýja plaggi er gamla aðhaldskrafan inni. Ég kalla eftir að við breytum því. Það er engin stemning fyrir því að kalla fram aðhald á þessum tíma. Hæstv. ráðherra getur kallað eftir aðhaldinu þegar við erum komin upp úr þessari holu. Þá getur hann barist fyrir sínu aðhaldi hjá hinu opinbera. Þetta er bara ekki tíminn, herra forseti, til að setja þessu sérstöku aðhaldskröfu. Hún er fyrir hendi. Ég veit að það er ekki verið að setja neina nýja aðhaldskröfu, en gamla aðhaldskrafan er inni og ég vona innilega að hæstv. ráðherra og hv. þingmenn Vinstri grænna og Framsóknar séu tilbúnir að taka hana út. Að sjálfsögðu munum við takast aftur á um þetta þegar fjármálaáætlunin kemur en þetta skiptir máli og er blaut tuska framan í þær opinberu stofnanir sem er í framlínunni.
Þetta á líka við skólana sem eru núna að fá umsókn eftir umsókn frá fólki sem er að leita sér að frekari námi út af bágbornu atvinnuástandi. Af hverju fá skólarnir enn þá aðhaldskröfu? Það eru fyrirbæri í opinbera kerfinu sem eru ekki með aðhaldskröfu eins og dómstólar, líkt og ég gat um áðan. Af hverju getur hæstv. ráðherra ekki verið tilbúinn núna og sagt: Ég skal falla frá aðhaldskröfu á spítalana og skólana. Það er nú Covid, það er gríðarlegt álag á aðila á viðkomandi stofnunum og þetta er kannski ekki rétti tíminn að setja sérstaka aðhaldskröfu á þær.
Hæstv. forseti. (Forseti hringir.) Ég held að þetta séu helstu punktarnir sem við ræðum hér í dag af hálfu Samfylkingarinnar, af minni hálfu a.m.k., en að sjálfsögðu munum við skoða málið vel í meðförum nefndarinnar þegar það kemur þangað.