breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að minnast á það í samhengi við þessa umræðu um aðhaldskröfuna sem er í núgildandi fjármálaáætlun og við hyggjumst halda áfram inni, að á móti aðhaldskröfunni — sem er sums staðar 0,5%, eins og á við um heilbrigðisstofnanir og menntakerfið, 2% annars staðar og svo eru fjölmargir liðir ríkisrekstrarins algerlega undanþegnir aðhaldskröfu, eru með 0% aðhaldskröfu — eru nýjar fjárveitingar. Það er lokaniðurstaðan sem menn verða að skoða.
Þegar þróunin yfir tíma er skoðuð sést að á flestum þeim sviðum sem hv. þingmaður nefnir eru ríkisútgjöldin að vaxa. Jafnvel þótt við höfum verið að vinna með mjög lága og takmarkaða almenna aðhaldskröfu, eins og ég hef verið að lýsa hér í dag, 0,5% sums staðar á viðkvæmum sviðum, erum við á móti með nýjar fjárheimildir sem leiða til þess að yfir áætlunartímabilið aukast útgjöldin. Þetta er hægt að lesa út úr fjármálaáætluninni sem við erum að vinna með. Við höfum sagt að ríkisstofnanir geti treyst á að þær haldi þeim fjárveitingum sem eru í fjármálaáætlun. Það er grunnlínan hjá okkur.
Svo segjum við því til viðbótar að menn muni fá fjármögnun vegna aukinna verkefna sem tengjast faraldrinum beint. Við förum í sérstakt fjárfestingarátak en við segjum líka að við viljum ráðast í umbætur í ríkisrekstrinum og ég ætla bara að fullyrða að við eigum inni alveg ótrúlega mikið ósótt á því sviðinu. Við getum gert miklu betur. Við höfum sýnt það með dæmum. Við höfum verið að reyna að setja af stað einstök verkefni, eins og endurmat útgjalda, en ég fullyrði það sem fjármálaráðherra til margra ára að það er hægt að fara mun betur með fjármagn víða í opinberum rekstri.