150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[14:13]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Við verðum kannski ekkert sammála en fyrst ég hef hæstv. ráðherra í beinni línu var tvennt sem komst ekki að hér. Í fjármálaáætluninni kemur fram að það verði ekki bætt í tilfærslu velferðarkerfisins á næstu árum, nú kemur tilvitnun: „… nema til komi samsvarandi lækkun útgjalda í öðrum tilfærslukerfum.“ Tilfærslukerfi eru bótakerfi. Er það þá rétt skilið hjá mér að króna á móti krónu skerðingin, sem er hluti af tilfærslukerfinu, verði t.d. ekki afnumin á þinni vakt, hæstv. ráðherra, (Fjmrh.: Já.) nema það komi lækkun einhvers annars staðar?

Spurning númer tvö er: Hvað gerist árið 2022 þegar þessi fjármálastefna rennur sitt skeið? Munu þá „kikka inn“ hinar ströngu fjármálareglur sem Sjálfstæðisflokkurinn barðist fyrir um að heildarjöfnuður hins opinbera sé jákvæður á fimm ára tímabili og í annan stað um tiltölulega hraða niðurgreiðslu skulda? Ætlar hæstv. ráðherra þá, árið 2023 og fram eftir, að fara í blóðugan niðurskurð? Fjármálareglurnar kalla á það, þær eru ansi harðar. Eða mun hæstv. ráðherra víkja frá þeim þegar þar að kemur? Þessi áætlun er bara til 2022, ég átta mig á því. En ég er að kalla eftir sýn ráðherrans. Hvað gerist eftir 2022? Er ekki skynsamlegra að lengja aðeins í þessu og fara ekki í þennan niðurskurð gagnvart því fólki sem nýtir sér opinbera þjónustu, hvort sem það eru aldraðir, öryrkjar, námsmenn, sjúklingar eða fátækt fólk? Eigum við ekki að lengja aðeins í þessu? Við getum gert það núna og fyrst og fremst skuldað okkur sjálfum.

Er það ekki skynsamlegri og manneskjulegri leið að láta þessar hörðu fjármálareglur ekki kikka inn, ef svo má segja, árið 2023? Það væri ágætt að fá skýr svör frá hæstv. ráðherra varðandi þetta tvennt, bótakerfið annars vegar, það kemur ekki króna inn í það samkvæmt þessu, og síðan hvað gerist eftir 2022. Munum við þá sjá niðurskurðarhnífinn á lofti eða hvað?