150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[14:19]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Afsakið, ég var svolítið ruglaður, en ef ég skil rétt andsvarið við andsvari, eða hvað þetta var, er hæstv. ráðherra tilbúinn til að milda höggið aðeins, þ.e. að fjármálareglurnar muni ekki fara að virka af öllu afli árið 2023. Það skiptir mjög miklu máli og Samfylkingin er svo sannarlega einhuga í því að láta þessa kreppu og þetta högg ekki lenda á þeim hópum sem hallast standa. En það er rauður þráður í stefnu jafnaðarmanna að við reynum að dreifa byrðunum. Við eigum eftir að sjá hvernig það fer allt saman. Ég held að pólitík vetrarins muni svolítið snúast um þetta. Með hvaða hætti og hversu hratt munum við ná niður þessum halla sem er sögulega hár? Hér þarf að hugsa svolítið frumlega. Hér þurfum við að sjálfsögðu verðmætasköpun. Hér þarf að skoða skattalækkanir.

Hæstv. ráðherra er alltaf útmála okkur í Samfylkingunni sem einhvern skattahækkunarflokk en ég vil bara draga það sérstaklega fram að Samfylkingin hefur ítrekað talað fyrir skattalækkunum. Við lækkuðum tekjuskatt einstaklinga. En vitið þið hvernig við gerðum það? Við hækkuðum persónuafsláttinn. Við höfum lækkað fjármagnstekjuskattinn. En vitið þið hvernig við gerðum það? Við innleiddum frítekjumark. Við höfum lækkað virðisaukaskattinn. Hvernig gerðum við það? Við innleiddum Allir vinna. Við höfum þannig ítrekað talað fyrir því að breyta vörugjöldum og reyna að lækka verð til neytenda. Við viljum svo sannarlega efla eftirspurn en við viljum nota kraft hins opinbera þegar kemur að ríkisfjármálunum. Um það greinir okkur og Sjálfstæðisflokkinn illilega á.

Varðandi bótakerfið er króna á móti krónu skerðingin enn þá fyrir hendi þótt hún sé búin að minnka. Hún er orðin 65%. (Gripið fram í.) Jú, hún er 65%, munið þið? Við tókumst á um þetta síðasta vetur þannig að það margítrekaða loforð verður þá ekki uppfyllt ef hún er enn þá fyrir hendi. Þetta er það sem Öryrkjabandalagið hefur ítrekað bent okkur á, að við þurfum að stíga skrefið til fulls. Auðvitað eru það sorgleg skilaboð til öryrkja og fleiri (Forseti hringir.) sem reiða sig á opinberar bætur að þau fái ekki frekari innspýtingu, einmitt á þeim tíma þegar þau þurfa þess, nema til komi lækkun einhvers annars staðar frá.

Hér getum við gert betur, herra forseti, (Forseti hringir.) varðandi þá hópa sem höllustum fæti standa í okkar samfélagi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)