150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[14:32]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni ræðuna. Ég geri helst athugasemdir við lokaorð ræðunnar, plaggið er ekki gagnslausara en svo að hér stöndum við og ræðum það. Ég held að það sé afar mikilvægt í samhengi opinberra fjármála, eins og hv. þingmaður fór reyndar ágætlega yfir í ræðu sinni, að við mörkum skýran ramma um fjármálaáætlun og svo fjárlögin á hverju ári, sem við erum að gera hér. Það er samhengið sem við horfum til.

Mér fannst athyglisverður punktur sem hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni sem snýr að sambandi atvinnuleysis og verðbólgu. Það hafa margir hagfræðingar í gegnum tíðina verið að kljást við. Gjarnan er vísað til kenningar nýsjálensks hagfræðings og talað um Phillips-ferlið, líkans sem lýsir samhengi milli verðlags eða launa og atvinnuleysis. Kjarninn í því er að markmið um fulla atvinnu og stöðugt verðlag stangist algerlega á.

Mig langar að tengja það baráttu stéttarfélaga fyrir bættum kjörum, og þeim ávinningi sem við höfum náð sem samfélag í að auka kaupmátt gríðarlega og hækka laun. Við þessar kringumstæður birtast áhyggjur um að verðbólga kunni að fara af stað þegar krónan gefur eftir. Eru fyrirtæki ekki jafn mikið í færum og áður til að velta auknum launakostnaði út í verðlagið og frekar þvinguð til að hagræða (Forseti hringir.) með því að fækka störfum? Hver skoðun hv. þingmanns á því?