breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegur forseti. Ég sagði að plaggið væri gagnslaust með tilliti til eftirlits þingsins. Já, vissulega erum við að ræða það og ég er einmitt að segja nákvæmlega það, að ég get ekki bent á fjármálastefnuna eftir á og sagt: Heyrðu, markmiðið er hérna. Það á að nást með þessu og þessu, og svo segi ég ári seinna: Við náðum ekki markmiðinu en það er af ýmsum ástæðum sem eru eðlilegar og útskýranlegar og allt í fína með það. Eða að þetta var óraunhæft eða þar fram eftir götunum. Þannig að við fáum aldrei tækifæri til að leggja mat á það hvort rökstuðningurinn dugar til þess að ná tilætluðum áhrifum. Það er það sem vantar.
Tilgangur hins opinbera, sem er hjá okkur útgefandi gjaldmiðils — við erum með efnahag sem við stjórnum í rauninni alveg niður í gjaldmiðilinn — er þegar allt kemur til alls að jafna efnahaginn, að hafa stjórn á því hversu mikil verðmæti eru í efnahagskerfinu og passa að verðbólga fari ekki á skrið og líka að passa að við náum að framleiða það sem við getum framleitt. Atvinnuleysi þýðir glötuð tækifæri til framleiðslu. Það spilar inn í ákveðið tómarúm sem myndast þar sem getur leitt til gliðnunar og aukinnar verðbólgu og það er flókið samband þar á milli. En ef við hunsum atvinnuleysið algerlega erum við líka að hunsa þann möguleika samfélagsins sem við gætum náð ef við næðum einfaldlega að nota það afl sem er óvirkjað. Við erum í því ástandi núna að allt það mannafl, sem nú er atvinnulaust, er ekki glatað framleiðsluafl, alls ekki, það er bara í pásu eins og er. Vissulega er það í vissum starfsgreinum sem er kannski ekki auðvelt að endurræsa. En þá kemur upp nauðsyn þess að hið opinbera komi inn með nýsköpunartækifæri því að efnahagurinn virðist ekki hafa það bolmagn í einkageiranum að geta komið inn af krafti til að skapa ný störf. Þannig að jöfnun á efnahagnum ríkisins megin hlýtur að miða að því að lágmarka atvinnuleysi eins mikið og hægt er. Það er vissulega hægt að fara of langt í því ef það er eitthvert náttúrulegt atvinnuleysi, sem við komumst þó aldrei að hvert er nema við reynum að nálgast það.
Kaupmættinum sem við höfum upplifað hér á undanförnum árum og áratugum er hins vegar mjög misskipt. Það kemur reyndar fram í tekjusögunni sem fjármálaráðherra vísaði til, að þeir sem eiga mest fá mest af kaupmættinum. Það verður að skoða dreifinguna (Forseti hringir.) á kaupmættinum hjá fólki til að geta (Forseti hringir.) sagt að við stöndum undir auknum lífsgæðum vegna (Forseti hringir.) aukins kaupmáttar.
(Forseti (ÞorS): Skýringin á þessu langa og ítarlega andsvari hv. þingmanns er sú að klukkan fraus í borðinu.)