breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég var einmitt að pæla í klukkunni. Hún hoppaði eitthvað skringilega til. Skrýtið. Hún á að sýna tvær mínútur. Þetta er undarlegt.
Við verðum að taka tillit til þess núna að við erum búin að halda verðbólgumarkmiðum tiltölulega góðum á undanförnum árum. Seðlabankinn hefur stuðlað að því með vaxtalækkunum og þess háttar. En það tæki er bara að verða ónothæft. Jú, við getum svo sem farið í neikvæða vexti og eitthvað því um líkt. En það eru ríkisfjármálin sem þurfa bráðum að fara að taka til hendinni ásamt Seðlabankanum. Seðlabankinn getur ekki einn viðhaldið stöðugleika varðandi vísitölu neysluverðs mikið lengur. Og ef atvinnuleysið fer á flug er það eitthvað sem Seðlabankinn hefur enga stjórn á. Þá er það algerlega á okkar herðum hér og ríkisstjórnarinnar að vinna úr því vandamáli.
Það er erfitt að skoða stöðugleikann sem grunngildi því að það er dálítið fjölbreytt hugtak. Ég myndi frekar vilja einbeita mér meira að sjálfbærnihugtakinu. Það er dálítið áhugavert með tilliti til þess að erlendir ferðamenn sem koma til landsins eru ekki hluti af sjálfbærni okkar, þeir eru viðbót. Við þurfum að taka tillit til þess möguleika að sveiflur þar geta verið miklar, eins og t.d. með heimsfaraldri. Ég held að það hafi verið ákveðið vandamál og vanmat á sjálfbærnihugtakinu í opinberum fjármálum hingað til vegna svona atriða. Ekki hefur verið hugað nægilega vel að því, lögð hefur verið of mikil áhersla á stöðugleika, sem (Forseti hringir.) skilar sér ekkert endilega í (Forseti hringir.) sveiflulausum efnahag. Það verða (Forseti hringir.) tvímælalaust sveiflur, við verðum að viðurkenna það, en það er stöðugleikinn sem skiptir máli.
(Forseti (ÞorS): Eins og hv. þingmenn hafa tekið eftir þá er ólag á klukkunni. En forseti fylgist grannt með enda er öllu afmörkuð stund, eins og segir í Predikaranum, og það á einkum við um ræðutíma hér á Alþingi.)