150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[14:53]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Við ræðum fjármálastefnu sem samkvæmt laganna hljóðan á að gera til fimm ára í senn. Við erum nú í annað skipti að endurskoða hana og því er óhætt að segja að tilefnið sé ærið að þessu sinni. Við stöndum frammi fyrir aðstæðum sem við þekkjum að mörgu leyti ekki og eigum erfitt með að sjá langt fram í tímann. Gjarnan er talað um tegundir af kreppum. Talað er um að þær séu misjafnar í laginu. Meðal annars er talað um V-kreppu. Þá lítur kreppan út á línuriti eins og bókstafurinn V, þ.e. skarpt fall niður en síðan skarpur viðsnúningur, kreppan er þá ekki langvarandi. Ég held að við höfum flest átt von á, eða í það minnsta vonað, að við stæðum frammi fyrir svokallaðri V-kreppu. Síðan fór að teygjast aðeins úr og þá fóru menn að tala um svokallaða U-kreppu, en þá lítur kúrfan út eins og U. Síðan kom alveg ný útgáfa á fundi seðlabankastjóra með hv. efnahags- og viðskiptanefnd í morgun, þar sem seðlabankastjóri sagðist halda að kreppan yrði í laginu eins og þorratrog. Við vitum hvernig það er. Það fer tiltölulega skarpt hallandi niður og síðan er trogið nokkuð stórt eftir því hverju menn hlaða á það. En það þýðir að botninn getur orðið býsna breiður.

Gjarnan er talað um að við stöndum frammi fyrir nokkurs konar náttúruhamförum. Það eru kannski orð að sönnu þar sem upptök þessarar kreppu eru komin frá náttúrunni. Við tölum gríðarlega mikið um að ástandið sé fordæmalaust. Hæstv. fjármálaráðherra tók svo til orða áðan að hagkerfið væri í frjálsu falli. Ég held að við getum verið nokkuð sammála um að aðstæður séu með sérkennilegum hætti og þær séu þess eðlis að grípa þurfi til ráðstafana sem eru með sama hætti sérstaks eðlis. Það liggur eiginlega í hlutarins eðli. Maður fæst ekki við vanda af þessu tagi eingöngu með meðulum sem notuð hafa verið áður eða sem átt hafa við í minni háttar sveiflum eða sveiflum sem við þekkjum og vitum að eiga sér sitt upphaf og sinn enda.

Nú stöndum við sem sagt frammi fyrir þessu máli öllu. Það er skoðun mín að stjórnvöld séu ekki nægilega meðvituð um eða bregðist ekki við með nægilega markvissum hætti í þessu ástandi og að þau séu treg til að taka ákvarðanir sem eru djarfar og skipta miklu máli. Ég ætla ekki að gera lítið úr því sem gert hefur verið. Margt af því hefur verið til fyrirmyndar og auðvitað erum við svo heppin að við erum hér með gott heilbrigðiskerfi og eigum þar mikið af frábæru fagfólki. Það tók forystuna í því að verjast veirunni sjálfri og sjá um sóttvarnirnar, hvað skynsamlegast væri að gera í því efni. En það er stjórnvalda að takast á við hinar efnahagslegu afleiðingar þessarar kreppu, þessarar veiru, og þar liggur ábyrgð okkar. Þar bera þeir ríkasta ábyrgð sem standa við stjórnvölinn hverju sinni.

Það er alltaf erfitt að stjórna á óvissutímum, en það er hægt. Hægt er að setja upp margvísleg plön. Hægt er að beita alls konar aðferðafræði við það. Það sem er alfa og omega þess að fást við krísu, fást við aðstæður sem eru óþekktar, er að halda öllum upplýstum á hverju stigi máls um hvað verið er að reyna að gera, af hverju verið er að gera það og hvaða afleiðingar það kann að hafa. Það er líka hægt að veita vissan fyrirsjáanleika við slíkar aðstæður. Þess vegna höfum við í Viðreisn lagt ríka áherslu á nýsköpun. Heilmikið hefur verið gert í nýsköpun, ég ætla ekki að vanmeta það, en þar þarf að stíga stærri skref og þau þurfa að vera til lengri tíma.

Margir búa við mikla óvissu. Það er fólk sem er að missa lífsviðurværi sitt af ýmsum ástæðum, af ástæðum og í aðstæðum sem það hefur enga stjórn á. Það ræður einfaldlega ekki við aðstæðurnar. Þá er það hlutverk stjórnmálanna að reyna að hjálpa fólki til að takast á við þann vanda á mannsæmandi hátt. Atvinnuleysi er eitt stærsta böl sem nokkur einstaklingur eða fjölskylda getur orðið fyrir. Mikil umræða hefur verið um hvort hækka beri atvinnuleysisbætur eða hvernig eigi að beita þeim.

Við vonum, og ég held að við trúum því flest, að trogið seðlabankastjórans sé ekki óviðráðanlega breitt og að við munum rísa upp aftur. En það er mjög mikilvægt að við höfum á þeim tíma úrræði sem tryggja að fólki sem missir vinnuna, eða missir fyrirtæki sitt niður í engin umsvif, sé veitt aðstoð og einhver björg og von og trú á framtíðina. Þess vegna á að hafa tímabundin úrræði þar sem t.d. tekjutengdar atvinnuleysisbætur eru settar til lengri tíma. Vissulega var það tilkynnt í gær að framlengja ætti það úrræði að lengja tekjutenginguna, en það er gert til of skamms tíma að mínu mati. Á sama hátt var tilkynnt að lengja eigi svokallaða hlutabótaleið og það er gert til tveggja mánaða. Það er líka til of skamms tíma. Sagt er að það sé gert svona vegna þess að veita þurfi stjórnvöldum andrúm til að meta aðstæður og vita til hvaða ráða eigi að grípa. Það er gott og gilt en fólkið og fyrirtækin þurfa sitt andrúm. Fólk þarf að vera visst um að það geti lifað af þessu eitthvað fram í tímann. Þar eru tveir og þrír mánuðir ekki fullnægjandi, alls ekki. Ég held að það sé líka skynsamlegt að tryggja að fólk hafi framfærslu, sérstaklega þeir sem minnst hafa. Við vitum að þeir fjármunir skila sér nánast allir lóðbeint aftur út í hagkerfið og halda uppi neyslustigi, en það er mjög mikilvægt að við getum haldið því uppi.

Það er auðvitað margt sem hægt væri að fjalla um. (Forseti hringir.) Ég ætla rétt að lokum að nefna vandamál sem ég held að við verðum að takast á við, en það er sá fjöldi einstaklinga, ekki síst í ferðaþjónustunni, (Forseti hringir.) sem verið hefur með rekstur sinn á eigin kennitölu og veðsett eignir sínar þar á móti. Þar verðum við að grípa til einhverra ráðstafana.